Viðskipti innlent

Tekur við sem hag­fræðingur Við­skiptaráðs

Atli Ísleifsson skrifar
Ragnar Sigurður Kristjánsson.
Ragnar Sigurður Kristjánsson. VI

Ragnar Sigurður Kristjánsson hefur verið ráðinn nýr hagfræðingur Viðskiptaráðs. Ragnar hefur starfað á málefnasviði Viðskiptaráðs frá 2023 og tekur hann við stöðunni af Gunnari Úlfarssyni.

Á vef Viðskiptaráðs segir að Ragnar sé með BS próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og hafi lokið meistaraprófi í alþjóða- og stjórnmálahagfræði frá Nanyang tækniháskólanum í Singapúr árið 2022. 

„Áður starfaði hann í utanríkisráðuneytinu og á aðalræðisskrifstofu Íslands í New York.

Sem hagfræðingur mun Ragnar sinna málefnastarfi innan ráðsins, m.a. í formi greininga og úttekta, auk umsagnarskrifa og ráðgjöf við aðildafélaga.

Ragnar tekur við stöðu hagfræðings Viðskiptaráðs af Gunnari Úlfarssyni. Um leið og við óskum Ragnari til hamingju með nýtt hlutverk innan ráðsins, þökkum við Gunnari fyrir vel unnin störf á undanförnum árum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×