Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2025 08:24 Sif Jóhannsdóttir. aton Aton hefur ráðið Sif Jóhannsdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra fyrirtækisins og tekur hún við um áramótin.
Í tilkynningu segir að Sif hafi undanfarin fjögur ár gegnt starfi rekstrarstjóra Aton og taki nú við af Ingvari Sverrissyni sem hafi verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin ár. Ingvar, sem jafnframt er einn eigenda Aton, muni áfram vera í lykilhlutverki innan félagsins, sem ráðgjafi auk, þess sem hann verði stjórnarformaður þess. „Sif hefur starfað fyrir Aton í yfir sex ár. Hún hóf störf sem ráðgjafi og tók árið 2021 við sem rekstrarstjóri, samhliða setu í framkvæmdastjórn félagsins. Sif er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa numið verkefnastjórnun í UCLA í Los Angeles og breytingastjórnun í Harvard háskóla í Boston,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Ingvari að búið sé að byggja upp öflugt félag sem sérhæfi sig í strategískum samskiptum og hönnun, og nú eigi að stíga næsta skref. „Sif þekkir rekstur og starfsemi Aton út og inn og er því enginn betur til þess fallinn að leiða áframhaldandi þróun og vöxt félagsins. Ég mun ekki fara neitt, heldur einbeita mér að öðrum mikilvægum verkefnum,semráðgjafi, eigandi og stjórnarformaður,“ segir Ingvar. Þá er haft eftir Sif að Aton sé öflugt samskipta- og hönnunarfélag með sérstöðu á markaði og traustan hóp viðskiptavina. „Við byggjum okkar árangur á reynslumiklum og hæfileikaríkum hópi starfsfólks. Við ætlum að byggja ofan á þann árangur, efla teymið enn frekar og leiða félagið inn í næsta þróunar- og vaxtarskeið. Ég hlakka til vegferðarinnar fram undan, “ segir Sif. Hjá Aton starfa um þrjátíu sérfræðingar í hönnun, samskiptum, stefnumótun og markaðsmálum.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Samstarf Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira