Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Árni Sæberg skrifar 12. desember 2025 15:08 Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm yfir manninum í dag. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjöldann allan af brotum á meðan lögregla veitti honum eftirför. Meðal annars bakkaði hann á fjörutíu kílómetra hraða á klukkustund svo að minnstu mátti muna að gangandi vegfarandi yrði undir bíl hans. Á meðan á þessu stóð var hann undir áhrifum sjö mismunandi ávana-og fíkniefna og slævandi lyfja.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögreglulögum. Það hafi hann gert með því að hafa á miðvikudegi í byrjun janúar í fyrra ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Í blóði hans hafi mælst alprazólam, amfetamín, díazepam, fenazepam, klónazepam, nordíazepam og tramadól. Hann hafi ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu, sem hafi reynt að stöðva för hans með forgangsakstursljósum lögreglubifreiðar, svo að eftirför lögreglu hófst þar sem maðurinn hafi ekið án nægjanlegrar tillitssemi og varúðar og yfir óbrotnar miðlínur og ógætilega á milli bifreiða án þess að gefa stefnumerki og án þess að miða ökuhraða við aðstæður með sérstöku tilliti til öryggis annarra og yfir leyfilegum hámarkshraða í þéttbýli. Minnstu mátti muna Maðurinn hafi ekið austur Grænásveg í Reykjanesbæ, þar sem lögregla hafi fyrst gefið honum merki með forgangsakstursljósum lögreglubifreiðarinnar um að stöðva, sem maðurinn hafi ekki sinnt heldur aukið hraðann og ekið háskalega fram úr bifreið við Grænásveg, þar sem litlu hafi mátt muna að bifreiðin hefði hafnað framan á farmflutningabifreið, sem ekið hafi verið úr gagnstæðri átt. Því næst hafi hann beygt suður aðrein að Bergási, þar sem hann hafi ekið of hratt miðað við aðstæður og með allt að 68 kílómetra hraða á klukkustund, þar sem leyfður hámarkshraði sé 30 kílómetrar á klukkustund, uns hann beygði til suðurs inn á Vallarás þar sem hann hafi ekið of hratt miðað við aðstæður og með allt að 85 kílómetra hraða á klukkustund, þar sem leyfður hámarkshraði sé 30 kílómetrar á klukkustund. Hann hefi ekið Vallarás til suðurs þar til hann missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin hring snerist á mikilli ferð og hafnaði utan vegar við Vallarás þar sem bifreiðin nam staðar. Lögreglubifreiðinni hafi þá verið lagt framan við bifreiðina þar sem hún var kyrrstæð og lögregla gefið manninum fyrirmæli um að stíga út úr bifreiðinni, sem maðurinn hafi ekki sinnt heldur gangsett hreyfil bifreiðarinnar og tekið af stað suður Vallarás í átt að Fitjum en misst stjórn á bifreiðinni á ný með þeim afleiðingum að bifreiðin snerist hálfan hring. „Ákærði bakkaði þá bifreiðinni of hratt miðað við aðstæður og á um 40 km hraða á klukkustund suður Vallarás í átt að Fitjum þar sem litlu mátti muna að ekið hefði verið á gangandi vegfaranda, en ákærði bakkaði bifreiðinni uns hann missti stjórn á henni og bifreiðin endaði utan vegar og á grindverki við Fitjar þar sem lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar.“ Játaði skýlaust Með akstrinum hafi maðurinn raskað umferðaröryggi í alfaraleið og stofnað á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu vegfarenda á akstursleið sinni í augljósan háska, þar á meðal lögreglumanna sem reyndu að stöðva hann. Í dóminum segir að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Með hliðsjón af brotaferli, játningar og alvarleika brota mannsins væri refsing hans hæfilega ákveðin fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá greiði hann 540 þúsund króna sekt, missi ökuréttindi í fjögur ár og greiði allan sakarkostnað, 509 þúsund krónur.
Umferðaröryggi Dómsmál Reykjanesbær Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira