Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira Grétar Ingi Erlendsson, Erla Sif Markúsdóttir og Guðbergur Kristjánsson skrifa 12. desember 2025 11:33 Fákeppni hefur lengi ráðið för í íslenskum sjóflutningum. Faxaflóahafnir ásamt Eimskip og Samskip hafa haft yfirráð á markaðnum og afleiðingarnar eru öllum kunnar: misnotkun á markaðsráðandi stöðu, samráð sem metið var til 62 milljarða króna og 17 milljarða auknar greiðslur heimila vegna hækkunar verðtryggðra lána. (Tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða - RÚV.is). Til að sporna gegn þessu lagði síðasta ríkisstjórn grunn að sterkari samkeppni með uppbyggingu vöruhafnar í Þorlákshöfn. Nú hyggst ný ríkisstjórn hins vegar hverfa frá þeirri stefnu og taka skref aftur í átt til gamla fákeppnismódelsins. Íslendingar tapa, risarnir hagnast. Á í alvöru að hverfa aftur til fákeppni? Nú boðar ríkisstjórnin, undir formerkjum þess að „ræsa vélarnar“, algert framkvæmdastopp í Þorlákshöfn. Það merkir að sókn gegn fákeppni sé stöðvuð. Við undirrituð, fulltrúar í stjórn hafnarinnar í Þorlákshöfn, höfum gagnrýnt fyrirhugaðar breytingar á samgönguáætlun 2026–2040, ekki vegna formsatriða heldur vegna grundvallarspurningar: „Ætlar ríkið að fylgja tilmælum samkeppnisyfirvalda og tryggja raunverulega samkeppni, eða snúa til baka í fákeppni á sjóflutningum?“ Jafnræði í sjóflutningum er hagsmunamál þjóðarinnar Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað bent á að smærri keppinautar þurfi raunhæfan aðgang að fullnægjandi hafnaraðstöðu. (Alit-1_2023-Samkeppnishindranir-i-flutningum.pdf). Þorlákshöfn er eina höfnin sem getur veitt slíkt aðgengi og skapað mótvægi við Faxaflóahafnir. Tvö öflug skipafélög starfa nú í Þorlákshöfn og hafa þau þegar eflt samkeppni, lækkað flutningskostnað og skilað ávinningi til fyrirtækja og heimila. Þetta hefur aðeins verið mögulegt vegna samstillts átaks ríkis og sveitarfélagsins. Vilji sveitarfélagsins er óbreyttur. Ef ríkið stígur til hliðar er ljóst hvert ferlið leiðir, aftur inn í fákeppni. Framkvæmdir eru óumdeild lykilforsenda Ný og stærri skip Smyril Line eru í smíðum og koma til þjónustu á næsta ári. Þeim er ætlað að efla samkeppni í flutningum til og frá Íslandi. Þessi skip, sem ákveðið var að byggja á grundvelli gildandi samgönguáætlunar, geta ekki nýtt Þorlákshöfn svo vel sé nema ráðist sé í framkvæmdir. Frestun myndi grafa undan fjárfestingum, veikja samkeppni og draga úr trúverðugleika stjórnvalda. Þetta er prófsteinn á það hvort ríkið standi við eigin áætlanir og eigin orð. Vegakerfi sem bregst og hindrar samkeppni Ástand Þrengslavegar og Þorlákshafnarvegar er heldur ekki boðlegt. Á síðustu fjórum árum hafa þungatakmarkanir á Þrengslavegi staðið í 106 daga, sem jafngildir rúmlega fjórum heilum vinnuvikum á ári. Engar sambærilegar leiðir á suðvesturhorninu hafa sætt takmörkunum. Þetta dregur úr trausti, hækkar kostnað og hamlar starfsemi skipafélaga í Þorlákshöfn. Ástandið þjónar aðeins þremur stórum aðilum: Faxaflóahöfnum og þeim fákeppnisrisum sem þar hafa byggt yfirburðastöðu sína. Ákall sem Alþingi verður að taka alvarlega Við skorum á Alþingi og Umhverfis- og samgöngunefnd að endurskoða Samgönguáætlunina og tryggja fagleg og ábyrg vinnubrögð. Uppbygging Þorlákshafnar og aðliggjandi vega verður að halda áfram án tafar, í samræmi við markmið Samkeppniseftirlitsins og í þágu þjóðarhagsmuna. Þetta má ekki snúast um sérhagsmuni einstakra aðila. Þetta verður að snúast um íslensk heimili, íslenskt atvinnulíf og þjóðarbúið sjálft. Þorlákshöfn hefur sýnt að hún getur undið ofan af rótgróinni fákeppni. Nú er komið að stjórnvöldum að sýna að þau standi með samkeppni, með neytendum og þar með almannahag. Höfundar eru fulltrúar í Hafnar- og framkvæmdarnefnd Ölfuss. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ölfus Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarmál Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar