„Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ Árni Sæberg skrifar 18. nóvember 2025 12:17 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Vísir/Anton Utanríkisráðherra segir það mikil vonbrigði að aðildarríki Evrópusambandsins hafi samþykkt tillögu um verndartolla á innflutt kísiljárn á fundi í morgun. Hún hafi frestað undirritun varnarmálayfirlýsingar Íslands og ESB vegna málsins.
Fundinum var frestað í tvígang en bæði íslensk og norsk stjórnvöld lögðu fast að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að veita þeim undanþágu frá tollunum en án árangurs. Bæði ríki eiga í efnahagsbandalagi við Evrópusambandið með EES-samningnum. Aðgerðunum er lýst sem „mikilvægu skrefi“ til að vernda evrópskan járnblendiiðnað í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þar segir enn fremur að þó að Ísland og Noregur séu ekki undanþegin aðgerðunum séu þær sérstaklega hannaðar til þess að hafa lágmarksáhrif á virðiskeðjur í Evrópu. Noregur og Ísland framleiða stóran hluta járnblendis í Evrópu. Vonbrigði en jákvætt að tekið sé tillit til hagsmuna Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi niðurstöðu aðildarríkjanna við Hallgerði Kolbrúnu E. Jónsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Viðtal við hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan: „Þetta eru mikil vonbrigði, ég ætla alveg að viðurkenna það. Það er ljóst að þessi mikla hagsmunagæsla sem við, í samvinnu við Norðmenn, höfum haldið uppi, hún hefur haft áhrif. Það er ekki oft sem atkvæðagreiðslum er frestað og það ítrekað. Það var ljóst þar til í morgun að þetta var mjög tvísýnt, hvernig þetta myndi enda, en svona endaði þetta.“ Tillit tekið en samt brotið gegn grundvallaratriðum Hins vegar sé það jákvætt að í útfærslu verndarráðstafananna taki framkvæmdastjórnin tillit til íslenskra hagsmuna. „Mér sýnist að okkar fyrirtæki, Elkem, muni koma þokkalega frá þessu, við eigum eftir að sjá hvernig markaðurinn þróast. Þannig að það er verið að taka tillit og okkar hagsmunagæsla hefur skilað árangri. Það breytir ekki því að ég er náttúrulega með miklar áhyggjur af því að það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins.“ Frestar undirritun mikilvægrar yfirlýsingar Á morgun hefjist árlegur fundur EES-ráðsins, sem samanstendur af fulltrúum EFTA-ríkjanna og aðildarríkja ESB. „Þar munum við meðal annars hitta fólk úr kommissjóninni. Við og Noregur munum ráðfæra okkur hvernig við munum beita málflutningi okkar. Það er alveg ljóst að sá fundur er að gjörbreytast. Ég vil líka geta þess að þegar ég fékk fréttirnar hérna inn á ríkisstjórnarfund þá lét ég strax kalla til fulltrúa Evrópusambandsins á fund í utanríkisráðuneytinu. Vel að merkja, ég hef aðeins einu sinni kallað til sendiherra áður og það var einmitt sendiherra ESB út af þessu, til að undirstrika okkar hagsmuni í þessu. Þar er verið að greina frá því að ég mun fresta undirritun á öryggis- og varnarmálayfirlýsingunni sem lá fyrir að ég ætti að skrifa undir.“ Yfirlýsingin sé mjög mikilvæg út frá ýmsum sjónarhornum en það sé alveg ljóst að henni hugnist ekki að skrifa undir hana við núverandi aðstæður. Tekur undir með SI Samtök iðnaðarins hafa sagt óásættanlegt að íslenskir kísilframleiðendur þurfi að fylgja íþyngjandi regluverki Evrópusambandsins en loka eigi á aðgang þeirra að Evrópumarkaði. „Ég ætla að taka undir það. Mér finnst óboðlegt að við sem uppfyllum lög og reglur sem hafa verið settar af hálfu Evrópusambandsins, að við höfum síðan ekki þessa virkni sem EES-samningurinn kveður á um, að við séum einfaldlega hluti af innri markaðinum,“ segir utanríkisráðherra. Aftur á móti sé ekki í boði að segja að nú sé EES-samningurinn kominn upp í loft. Við verðum og þurfum að reiða okkur á það að vera með virkan markað. Sjötíu prósent af útflutningsafurðum þjóðarinnar fari til Evrópusambandsríkjanna. „Það er mikið undir að þessi virkni haldi áfram. Þess vegna hefur verið gott í öllum þessum samtölum, stundum hrópum og köllum líka, að finna að það eru mörg aðildarríkjanna sem hafa verulegar áhyggjur af þessari ákvörðun.“ Þýðir ekki að fara á taugum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stefnir á að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um að aðildarviðræður við ESB verði teknar upp að nýju. Þorgerður Katrín segir ákvörðun aðildarríkjanna í morgun ekki setja þær fyrirætlanir í uppnám. „Miklu heldur myndi ég segja að það sé komið að þessum tímapunkti að spyrja að því hvar Ísland er í þessari stöðu heimsmála, eins og þau blasa við núna. Stórveldin eru í slag.“ Heimsmyndin sé að breytast og taka þurfi heilbrigða og opna umræðu um stöðu Íslands. „Fyrst og fremst þurfum við að horfa til íslenskra hagsmuna og þá þýðir ekki að fara á taugum, eins og mér sýnist núna á fyrstu viðbrögðum stjórnarandstöðunnar í þessu máli.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Verndarráðstafanir ESB vegna járnblendis Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Evrópusambandið EES-samningurinn Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira