Óvænt stólaskipti skyggðu ekki á Bandaríkjareisuna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. nóvember 2025 17:17 Karl Gauti segist einfaldlega bara hlýða og Bergþór Ólason tekur við í forsætisnefnd en hér eru þeir ásamt Sigmundi Davíð formanni flokksins árið 2019. Vísir/Vilhelm Bergþór Ólason hefur tekið sæti Miðflokksins í forsætisnefnd Alþingis í stað Karls Gauta Hjaltasonar. Þá skellti þingflokkurinn sér saman til Washington á dögunum. „
Það er búið að ganga frá því í þinginu. Bergþór Ólason er tekinn við af mér,“ segir Karl Gauti í samtali við Vísi. Hann segir það einfaldlega hafa borið að með þeim hætti að Bergþór hafi hætt sem þingflokksformaður og fært sig yfir í forsætisnefnd. Karl viðurkennir að þetta feli í sér launaskerðingu en virðist hvergi banginn vegna málsins. Ertu sáttur við þetta? „Ég hlýði bara,“ svarar Karl Gauti sem bætir því við að stemningin í þingflokki Miðflokksins sé mikil þessa dagana. Karl Gauti var 3. varaforseti þingsins en nú er Bergþór tekinn við því hlutverki. Bergþór hætti nýverið sem þingflokksformaður í aðdraganda kosningar um varaformannsembættið hjá flokknum. Áður en til atkvæðagreiðslunnar kom dró Bergþór framboð sitt óvænt til baka. Snorri Másson var svo kjörinn varaformaður flokksins. Velheppnuð ferð til Washington Karl Gauti segir að flokkurinn finni fyrir meðbyr og hafi auk þess skellt sér í þriggja daga ferð til Washington í síðustu viku á meðan afgangur þingheims var á Norðurlandaráðsþingi þar sem Miðflokkurinn eigi ekki fulltrúa. Forsætisnefnd Alþingis á fundi 17. mars 2025.Alþingi/Ljósmyndir Rutar og Silju „Við ákváðum þetta bara með skömmum fyrirvara og náðum að hitta fjölmarga, þingmenn og hina og þessa og lærðum helling,“ segir Karl Gauti sem bætir því við að lokun alríkisins bandaríska hafi sett strik í reikninginn og þingflokkurinn ekki náð að hitta á eins marga og hann hefði kosið. „En við náðum einhverjum fjórum eða fimm heimsóknum á þessum skamma tíma. Það var bæði fróðlegt og upplýsandi fyrir okkur. Þetta er sterkur, góður og samheldinn hópur.“ Þingmenn fengu í einhverjum tilfellum tækifæri til að kynnast fjölskyldumeðlimum félaga sinna í flokknum. Þannig fóru eiginkona og barn Snorra Mássonar með vestur um haf en parið upplýsti á samfélagsmiðlum að þau hefðu gengið 28 þúsund skref einn heimsóknardaginn.
Miðflokkurinn Alþingi Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira