Mál leiðbeinandans á Múlaborg á leið til héraðssaksóknara Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. október 2025 12:27 Foreldrar barna á leikskólanum Múlaborg hafa gagnrýnt verklag borgarinnar og upplýsingaflæði eftir að málið kom upp. Vísir/Anton Brink Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um kynferðisbrot leiðbeinanda sem starfaði á leikskólanum Múlaborg er á lokametrunum og málið á leið til héraðssaksóknara. Lögregla kveðst ekki geta staðfest endanlega hversu mörgum börnum maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn, nú þegar rannsókn málsins er að ljúka af hálfu lögreglu.
Þetta segir Kristján Ingi Kristjánsson, lögreglufulltrúi hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Leiðbeinandinn, sem er karlmaður á þrítugsaldri, situr í gæsluvarðhaldi en hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald sem gildir þar til á þriðjudaginn í næstu viku. Miðað við svör lögreglu má ætla að ákvörðun um ákæru muni liggja fyrir áður en gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út. „Þetta er bara á lokastigi og er að fara til héraðssaksóknara,“ segir Kristján. Fyrst þegar málið kom upp lá fyrir grunur um að maðurinn hafi brotið gegn minnst einu barni á leikskólanum, en fram kom í fréttum í byrjun október að maðurinn væri grunaður um brot gegn fleiri en tíu börnum. Kristján Ingi kveðst á þessu stigi ekki geta sagt nokkuð til um hvort eitthvað hafi breyst hvað þetta varðar. „Það er í sjálfu sér ekkert meira sem ég get gefið upp varðandi málið,“ segir Kristján. Sjá einnig: Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Fyrir tæpum tveimur vikum síðan bárust jafnframt fréttir af því að starfsmaður á leikskólanum Brákarborg væri grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Það mál ku enn vera til rannsóknar. „Það mál er bara til rannsóknar. Ég get ekki tjáð mig frekar um það,“ segir Kristján.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira