Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. september 2025 20:55 María hafnar málflutningi Snorra um kynjafræði. Formaður félags kynjafræðikennara hafnar fullyrðingum þingmanns Miðflokksins um að í kynjafræði felist innræting hugmyndafræði. Mynd af þingmanninum úr skólastofu sýni að kynjafræðikennarar nýti dæmi úr veruleikanum.
María Hjálmtýsdóttir formaður félags kynjafræðikennara ræddi áætlun um að efla þekkingu kennara á kynjafræði í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar. Með jafnréttisáætluninni sem nú er til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd verður þekking kennara á öllum skólastigum í kynjafræði efld svo halda megi úti kennslu í faginu. María bendir á að þar sé átt við jafnréttisfræðslu. „Það er nú kannski ekki endilega talað um kynjafræði á öllum skólastigum, frekar jafnréttisfræðslu, þá er það bara hugmyndin að í rauninni kenna krökkum aldurstengt að vera samfélagsþegnar þar sem jafnrétti er í hávegum haft. Þar sem við berum öll virðingu fyrir hvort öðru, við séum ólík og allskonar og svo er það aldursmiðað hvað er farið í og kynjafræðin er kannski ekki fyrst.“ Gagnrýnt áformin harðlega Snorri Másson þingmaður Miðflokksins hefur gagnrýnt áformin harðlega, meðal annars í vor úr pontu Alþingis. Sagði hann þá að sumstaðar komist menn í gegnum framhaldsskóla án þess að þurfa að taka upp svo mikið sem einn einasta áfanga í Íslandssögu. „En í sumum skólum ber þeim skylda til þess að taka áfanga í kynjafræði. Og hvað er kennt þar? Jú í grunninn þetta klassíska, að konur séu eilíflega fórnarlömb og að karlar séu vafasamar upp til hópa. Ítrekað er fyrir þeim að náttúrulegt ástand þeirra: Karlmennska, sé á einhvern hátt alltaf eitruð nema þeir hugsi, tali og hegði sér nákvæmlega eins og kynjafræðingarnir mæla fyrir um.“ Nú sé stefnt að því í jafnréttisáætlun að tryggja slíka fræðslu á öllum skólastigum. „Á öllum skólastigum. Öllum skólastigum. Ekki bara grunnskólum, heldur líka leikskólum. Þannig innrætingin heldur áfram.“ Niðrandi tal um kynjafræði sé áhugavert María segir slíka orðræðu, niðrandi tal um kynjafræði og að hún sé í raun innræting hafa mikið verið í orðræðunni. Það sé áhugavert. „Vegna þess að kynjafræði er í rauninni bara ein af félagsvísindunum. Og félagsvísindin eru bara að skoða mannlega tilveru, við erum að greina hana. Afbrotafræði býr ekki til afbrot heldur greinir og reynir að skilja,“ segir María. Kynjafræðin reyni að skilja og greina með þrautreyndum og viðurkenndum rannsóknaraðferðum hvað það sé að vera manneskja. „Þarna er verið að tala um að það sé verið að innræta drengjum, eða tala um að drengir séu eitraðir, það þurfi að hugsa eins og kennarinn, konur séu eilíflega fórnarlömb. Þetta eru í rauninni rangfærslur vegna þess að við erum að skoða veruleikann út frá rannsóknaraðferðum, þetta er félagsvísindagrein eins og aðrar.“ Sjálfur uppi á töflu Þá hefur mikil umræða skapast um kynjafræði á samfélagsmiðlum eftir að Snorri birti myndband í gær þar sem hann sagði frá því að hann hefði fengið mynd senda úr kynjafræðitíma í skólastofu. Þar mátti sjá Snorra uppi á skjá í nokkuð þekktu Kastljósviðtali en Snorri gerir það að umtalsefni í myndbandinu að kennarinn sé Þorsteinn V. Einarsson sem löngum var kenndur við Karlmennskuna. „Guð veit hvað hann er að segja um mig í tímanum, ekki er það allt fallegt samkvæmt mínum upplýsingum, enda kannski ekki við því að búast að hann geti skyndilega orðið hlutlaus fræðimaður þegar kemur að mér,“ segir Snorri. Hann segir að hann taki því ekki persónulega hvað Þorsteini finnist um hann, en honum þyki dæmið staðfesta allt sem hann hafi sagt um kynjafræði í skólum. Allt nám sé pólitískt Spurð út í umræðuna og fullyrðingar um að kynjafræðin sé of pólitísk, hafi of sterka hugmyndafræði, jafnvel nýtt til að gagnrýna pólitíska andstæðinga og sé of hlaðin til að vera skyldufag segir María: „Allt nám er pólitískt. Það að konur séu í námi yfirhöfuð er pólitískt. Það er eins og þetta sé notað á samfélagsmiðlum í einhverskonar slag sem er ekkert relevant í rauninni í þeim veruleika sem er inni í skólastofunni þar sem við erum bara öll að vinna sem fræðafólk. Ég held að það sé notað að einhver birtist upp á töflu, af því að við erum að greina umræðu líðandi stundar, við notum fjölmiðla til þess, við notum það sem er í gangi í samfélaginu.“ Hún segist ekki fallast á það að það sé talsverð vinstri slagsíða í kynjafræði, það geti allt eins verið afleiðing frekar en orsök. Er þetta kannski sambærilegt því að hafa það sem skyldufag að kenna marxískar kenningar í framhaldsskólum? „Nei, þetta er í rauninni bara eins og að hafa félagsfræði sem skyldufag og þetta er í raun og veru eina fagið sem ég veit til að nemendur sjálfir og Samband íslenskra framhaldsskólanema sendi ákall um að yrði gert að skyldu. Þetta kemur frá þeim sjálfum.“
Leikskólar Framhaldsskólar Grunnskólar Skóla- og menntamál Miðflokkurinn Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira