Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2025 14:05 Kærunefndin var sammála viðskiptavininum um að upplýsingar bílaleigunnar og merkingar hafi ekki verið nægilega skýrar um að bensínbíl væri að ræða. Myndin er úr safni. Getty Bílaleigu á Íslandi hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum tæpa hálfa milljón króna í kjölfar þess að hafa rukkað hann um ýmsan kostnað í kjölfar þess að hann hafði fyrir dælt dísil á bílaleigubílinn sem knúinn var bensíni. Ástæðan er að upplýsingar og merkingar hafi ekki verið nægilega skýrar um að bensínbíl væri að ræða.
Þetta er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa sem kvað upp úrskurð sinn í málinu fyrr í vikunni, en það var viðskiptavinurinn sem kærði málið til nefndarinnar. Viðskiptavinurinn krafðist endurgreiðslu úr hendi bílaleigunnar á greiddum kostnaði vegna vegaaðstoðar að fjárhæð 101 þúsund króna og 317 þúsund króna vegna flutnings bílaleigubíla. Þá var einnig farið fram á endurgreiðslu á 421 evru vegna viðgerðar á bílaleigubílnum. Í úrskurðinum kemur fram að viðskiptavinurinn hafi tekið bílinn á leigu frá 18. desember 2024 til 3. janúar á þessu ári og greiddi fyrir það 2.188 evrur fyrir sem samsvarar um 315 þúsund krónur. Inni í verðinu var það sem kallað er „silfurtrygging“, barnasessa og nagladekk. Þurfti vegaaðstoð Tveimur dögum eftir að hafa fengið bílinn í hendurnar dældi viðskiptavinurinn díseleldsneyti á bílinn í stað bensíns. Bíllinn var þá orðinn óökuhæfur og tilkynnti viðskiptavinurinn málið þegar í stað til bílaleigunnar og fékk þær upplýsingar að óska eftir vegaaðstoð sem hann og gerði. Viðskiptavinurinn greiddi þá 101 þúsund króna fyrir að láta dæla dísileldsneytinu upp úr bílnum. Fram kemur að ekki hafi reynst unnt að koma bílnum af stað og var viðskiptavininum boðið af bílaleigunni að skipta um bíl. Þá var viðskiptavinum gert að greiða 600 þúsund króna tryggingargjald vegna bilunarinnar, en að endurgreiðslan myndi ráðast af endanlegu mati á tjóni bílaleigunnar. Viðskiptavinurinn þurfti einnig að borga 317 þúsund krónur fyrir flutning á hinum bilaða bíl frá bensínstöðinni og á starfsstöð bílaleigunnar og síðan flutning á öðrum bílaleigubíl bílaleigunnar til baka. Eftir skoðun og lagfæringu bílaleigunnar á bílnum var um 550 þúsund krónum af tryggingagjaldinu endurgreitt til viðskiptavinarins en eftir stóðu um sextíu þúsund krónur sem lentu á viðskiptavininum, 421 evra. Ágreiningur í málinu sneri að því hvor ætti að bera greiddan kostnað vegna afdælingar eldsneytisins og flutnings bílaleigubílanna sem og greiðslukröfu bílaleigunnar vegna viðgerðarinnar. Allt benti til að um dísilbíl væri að ræða Við meðferð málsins vísaði viðskiptavinurinn til þess að við afhendingu bílaleigubílsins hafi honum ekki verið veittar upplýsingar um hvers konar eldsneyti bíllinn gengi fyrir. Engar merkingar hafi verið á eldsneytisloki bílsins sem sýndu að um bensínbíl væri að ræða og þá hafi í handbók bílsins – sem var á frönsku – verið umfjöllun á tveimur stöðum um viðhald á díselbílvél. Viðskiptavinurinn hafi þannig talið að um dísilbíl verið að ræða og lagði hann fram ljósmyndir, myndbönd og gögn máli sínu til stuðnings. Lögðu fram mynd af eldsneysisloki annars bíls Kærunefndin bað við meðferð málsins bílaleiguna um að leggja fram gögn sem sýndu fram á að viðskiptavininum hafi sannanlega verið veittar upplýsingar um hvaða eldsneyti bíllinn gengi fyrir. Í byrjun þessa mánaðar lagði bílaleigan svo fram ljósmynd af eldsneytisloki bíls þar sem fram kemur hver eldsneytisgjafi hans sé sem og skjáskot af vefsíðu sinni þar sem sýni almennar upplýsingar um bíla bílaleigunnar. „Þegar sú ljósmynd sem [bílaleigan] lagði fram með kvörtun sinni er borin saman við þá sem [viðskiptavinurinn] sendi nefndinni þykir ljóst að ekki er um sömu bifreið að ræða enda er litur bifreiðanna ekki sá sami. Þá verður ekki ráðið af skjáskotinu hvaða eldsneytisgjafi hinnar umþrættu bifreiðar er en við reit sem tilgreindur er sem „fuel“ stendur aðeins að bifreiðin sé „hybrid“,“ segir í úrskurðinum. Var það mat kærunefndarinnar að bílaleigan hafi ekki sýnt fram á að viðskiptavinurinn hafi verið upplýstur um tegund eldsneytisgjafa bílaleigubílsins. Var það því niðurstaða kærunefndarinnar að bílaleigan ætti að endurgreiða viðskiptavininum vegna vegaaðstoðarinnar, flutnings bílanna og viðgerðar á bílnum, samtals 479 þúsund krónur. Í málinu var einnig deilt um dekk bílsins, en viðskiptavinurinn fór fram á skaðabætur og vildi meina að þau væru illa skrúfuð á og bíllinn því óöruggur. Sagði viðskiptavinurinn að starfsmaður bílaleigunnar hafi greint frá þessu við afhendingu, en í úrskurði kærunefndarinnar segir að viðskiptavinurinn hafi ekki lagt fram nein gögn þessu til stuðnings og var þeirri kröfu því hafnað.
Úrskurðar- og kærunefndir Bílaleigur Neytendur Bílar Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Hótel á Íslandi þarf að endurgreiða viðskiptavini 22 evrur, eða rúmar þrjú þúsund krónur, þar sem sjónvarpið á hótelherberginu virkaði ekki. 12. september 2025 06:32 Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Viðskiptavinur sem keypti borðplötu úr svokölluðum náttúrusteini skal vera heimilt að rifta kaupunum þar sem sýnishornið sem kaupin byggðu á hafi verið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim. Í borðplötunni hafi verið fjöldi áberandi ryðbrúnna slikja. 11. september 2025 14:04 Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Fleiri fréttir ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Sjá meira
Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Hótel á Íslandi þarf að endurgreiða viðskiptavini 22 evrur, eða rúmar þrjú þúsund krónur, þar sem sjónvarpið á hótelherberginu virkaði ekki. 12. september 2025 06:32
Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Viðskiptavinur sem keypti borðplötu úr svokölluðum náttúrusteini skal vera heimilt að rifta kaupunum þar sem sýnishornið sem kaupin byggðu á hafi verið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim. Í borðplötunni hafi verið fjöldi áberandi ryðbrúnna slikja. 11. september 2025 14:04