Seldu samheitalyf við hvítblæði og HIV fyrir hundruð milljóna Lovísa Arnardóttir skrifar 4. september 2025 14:48 Alls starfa um 220 hjá fyrirtækinu. Aðsend Lyfjafyrirtækið Coripharma seldi í júlímánuði lyf sem þau þróuðu sjálf, og aðrar vörur, fyrir tæpan hálfan milljarð. Tvö lyf sem voru þróuð af Coripharma og fóru á markað á síðasta ári, reyndust langstærst samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Annars vegar Bosutinib, sem er lyf við hvítblæði, og hins vegar Raltegravir, sem er lyf við HIV veirunni.
Samtals voru þessi tvö lyf með sölu yfir tvær milljónir evra sem samsvarar um 288 milljónum íslenskra króna. Í tilkynningu kemur fram að Coripharma hafi verið fyrsta samheitalyfjafyrirtækið til að setja Bosutinib á markað og sé enn eini framleiðandinn að því samheitalyfi í Evrópu. Lyfið er nú selt á 16 mörkuðum í öllum helstu löndum Evrópu og samkvæmt tilkynningu er eftirspurn margfalt yfir væntingar. Fyrirtækið hefur á þessu móttekið pantanir fyrir sjö milljónir evra á þessu ári, eða einn milljarð íslenskra króna, og er lyfið því söluhæsta lyf Coripharma. Þá segir að Coripharma sé eitt af tveimur félögum sem vitað er til að hafi náð að þróa Raltegravir fyrir Evrópumarkað, en fjöldi samheitalyfjafyrirtækja gerði tilraunir til þess, án árangurs, enda lyfið talið sérlega erfitt í þróun Lyfið fór á markað í Bretlandi, Spáni og Ítalíu á síðasta ári og bættist Þýskalandsmarkaður við á öðrum ársfjórðungi 2025. Reiknað er með að lyfið fari á átta nýja markaði í Evrópu fyrir árslok. Pantanir vegna Raltegravir eru að sama skapi vel yfir væntingum, en búið er að móttaka pantanir fyrir ríflega fimm milljónir evra á árinu eða 720 milljónir íslenskra króna. Í tilkynningu segir að Coripharma muni á seinni hluta þessa árs setja þrjú nýlega þróuð lyf á markað í gegnum viðskiptavini sína. Um 220 manns starfa hjá Coripharma, sem er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti og sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Bjarni Þorvarðarson er formaður stjórnar Coripharma og Jónína Guðmundsdóttir forstjóri fyrirtækisins.
Lyf Heilbrigðismál Tengdar fréttir „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn“ „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn, ég var aldrei fyrir þessa prinsessuleiki. Að vera með krullað hár, naglalakk og í háum hælum var ekkert fyrir mig. Þetta er ekki ég í eðli mínu. Ég var bara að moka skít í hestunum, þar leið mér best,“ segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur hjá Coripharma og Ungfrú heimur 2005. 11. apríl 2025 21:01 Einn stærsti hluthafinn losaði um hlut sinn í Coripharma Framtakssjóðurinn TFII, meðal annars einn stærsti fjárfestirinn í Coripharma um árabil, seldi nánast allan eignarhlut sinn í samheitalyfjafyrirtækinu til eigin hluthafa, einkum lífeyrissjóða. Sjóðurinn, sem hafði glímt við rekstrarerfiðleika um nokkurt skeið og sleit samstarfi sínu við Íslensk verðbréf snemma árs í fyrra, tapaði meira en 900 milljónum á árinu 2023 og náði samkomulagi við hluthafa um að leggja honum til aukið fjármagn. 7. maí 2024 15:41 Stjórn Coripharma setti skráningaráform á ís Íslenska samheitalyfjafyrirtækið Coripharma, sem hóf sölu á sínu fyrsta lyfi í Evrópu sumarið 2021, er ekki í virkum undirbúningi fyrir skráningu á hlutabréfamarkað eins og staðan er í dag, að því er kemur fram í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Innherja. 16. ágúst 2022 08:54 Tekjur Coripharma jukust um rúm 60 prósent milli ára Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma tapaði 12,5 milljónum evra, jafnvirði 1.700 milljóna króna, á síðasta ári samanborið við 11 milljóna evra tap á árinu 2020. Rekstrartekjur, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, námu 9 milljónum evra, eða um 1.250 milljónum króna, og jukust um ríflega 60 prósent milli ára. 8. júní 2022 08:31 Mest lesið Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Viðskipti innlent Sjálfbærni og fjárhagslegur árangur haldast í hendur Framúrskarandi fyrirtæki Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Viðskipti innlent Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Viðskipti innlent Sterk heild og skýr gildi gera Afltak að fyrirmynd í byggingariðnaði Framúrskarandi kynning Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Viðskipti innlent Hátíðin í heild sinni: Listi Framúrskarandi fyrirtækja birtur Framúrskarandi fyrirtæki Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Viðskipti innlent Tilkynna breytingar á lánaframboði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Ístak bauð best í frágang á nýja Landspítalanum Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Enn meiri veikleikar í samkeppnishæfni Íslands en ESB Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki Sjá meira
„Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn“ „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn, ég var aldrei fyrir þessa prinsessuleiki. Að vera með krullað hár, naglalakk og í háum hælum var ekkert fyrir mig. Þetta er ekki ég í eðli mínu. Ég var bara að moka skít í hestunum, þar leið mér best,“ segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur hjá Coripharma og Ungfrú heimur 2005. 11. apríl 2025 21:01
Einn stærsti hluthafinn losaði um hlut sinn í Coripharma Framtakssjóðurinn TFII, meðal annars einn stærsti fjárfestirinn í Coripharma um árabil, seldi nánast allan eignarhlut sinn í samheitalyfjafyrirtækinu til eigin hluthafa, einkum lífeyrissjóða. Sjóðurinn, sem hafði glímt við rekstrarerfiðleika um nokkurt skeið og sleit samstarfi sínu við Íslensk verðbréf snemma árs í fyrra, tapaði meira en 900 milljónum á árinu 2023 og náði samkomulagi við hluthafa um að leggja honum til aukið fjármagn. 7. maí 2024 15:41
Stjórn Coripharma setti skráningaráform á ís Íslenska samheitalyfjafyrirtækið Coripharma, sem hóf sölu á sínu fyrsta lyfi í Evrópu sumarið 2021, er ekki í virkum undirbúningi fyrir skráningu á hlutabréfamarkað eins og staðan er í dag, að því er kemur fram í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Innherja. 16. ágúst 2022 08:54
Tekjur Coripharma jukust um rúm 60 prósent milli ára Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma tapaði 12,5 milljónum evra, jafnvirði 1.700 milljóna króna, á síðasta ári samanborið við 11 milljóna evra tap á árinu 2020. Rekstrartekjur, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, námu 9 milljónum evra, eða um 1.250 milljónum króna, og jukust um ríflega 60 prósent milli ára. 8. júní 2022 08:31