Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Preppbarinn 29. ágúst 2025 11:01 Splunkunýr Preppbar opnar í dag á Hafnargötu 90 í Keflavík. 50% afsláttur verður á veitingum alla helgina. „Það verður allt á helmingsafslætti hjá okkur í dag og alla helgina,“ segir Karel Ólafsson en hann opnar Preppbarinn á Hafnargötu 90 í Keflavík í dag ásamt Birgi Halldórssyni.
Þetta er þriðji staðurinn sem þeir félagarnir opna en fyrsta Preppbarinn opnuðu þeir á Suðurlandsbraut í Reykjavík árið 2022. Síðan bættu þeir Preppbar við á Vesturlandsvegi og nú á að taka Suðurnesin yfir. Frábær aðstaða til að njóta matarins á staðnum Nákvæmt næringargildi birtist á skjá Preppbarinn er „Take away“ veitingastaður þar sem viðskiptavinir sjá næringargildi máltíðar reiknast út í rauntíma og birtast á skjá meðan máltíðin er búin til. Um leið og hráefni er bætt við réttinn kemur næringargildið fram á skjá og þegar máltíðin er klár prentast út miði á boxið þar sem næringargildin koma fram. Fólk getur til dæmis hlaðið þeim inn í heilsutengd smáforrit. Þegar þeir opnuðu fyrsta staðinn áttu þeir von á að íþróttafólk yrði stór viðskiptavinahópur en fljótlega kom í ljós að Preppbarinn höfðar til allra. „Hugmyndin er fyrst og fremst að auðvelda fólki á hraðferð að fá góðan, hollan og næringarríkan mat á sem stystum tíma og að fólk geti sérvalið allt í réttinn gramm fyrir gramm. Við vorum ekki einu sinni með matseðil þegar við opnuðum fyrsta staðinn en bættum honum fljótlega inn því fólki finnst líka þægilegt að geta valið tilbúnar samsetningar af matseðli og gripið með sér. Hjá okkur er hægt að fá heitar máltíðir í boxi, vefjur og sallöt. Stærsti viðskiptavinahópurinn er venjulegt skrifstofufólk sem vill hollt og gott í hádeginu,“ útskýrir Karel. Stútfullt af hollustu sem hægt er að velja í box eða vefjur. Næringargildin reiknast upp í rauntíma meðan rétturinn er settur saman. Boxin komin í verslanir og frekari útrás í kortunum „Við erum komnir með boxin í verslanir eins og Krónuna, Nettó og Iceland og það gengur mjög vel. Vinsælasti rétturinn er Argentínuboxið, það inniheldur marineraðan kjúkling, avakadó, egg, grjón og nachos.“ Preppbarinn er ekki eini veitingastaður þeirra Karels og Birgis heldur reka þeir einnig Lamb Street Food. Spurður hvort þeir verði í frekari útrás út á land segir Karel þá spennta fyrir því að opna á Preppbar á Akureyri. Nýi staðurinn í Keflavík er þriðji Preppbarinn sem þeir félagar opna. „Svo er aldrei að vita nema Lamb Street Food opni líka í Reykjanesbæ þegar fram líða stundir,“ segir hann. „Við höfðum haft augastað á Reykjanesbæ í nokkurn tíma, kannski af því að Karel flutti í Vogana fyrir nokkru. Þegar tækifærið datt í hendurnar á okkur ákváðum við að kýla bara á það,“ segir Birgir. Birgir segir mikla samkeppni á markaðnum og rekstrarumhverfið sé áskorun alla daga. Þeir láti það ekki stöðva sig og eru bjartsýnir á að Reykjanesbær taki þeim opnum örmum. Fimmtíu prósenta afsláttur verður af öllu um helgina.
Matur Veitingastaðir Reykjanesbær Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist „Stundum verður maður að segja fokk it“ Tónlist Celebrating George Michael kemur til Íslands Lífið samstarf Fleiri fréttir Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira