„Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. ágúst 2025 08:04 Um fjölskylduviðburð er að ræða þar sem ýmislegt áhugavert er í boði fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst börnin. Magnús Hlynur Hreiðarsson „Beint frá býli“ dagurinn verður haldinn á morgun, sunnudaginn 24. ágúst frá 13 til 16 í hverjum landshluta. Um er að ræða fjölskylduvænan hátíðisdag þar sem neytendur geta heimsótt og kynnst lífi og starfi á lögbýli í sínum landshluta, smakkað og keypt vörur af öðrum smáframleiðendum á svæðinu og upplifað hvernig íslenskur matur verður til.
Beint frá býli dagurinn var fyrst haldinn árið 2023 en þá í tilefni af 15 ára afmæli félagsins. Hann tókst svo vel að ákveðið var að gera „Beint frá býli daginn“ að árlegum viðburði. Í fyrra heimsóttu yfir 4.500 gestir sjö býli víðsvegar um landið, sem var 50 prósent aukning á milli ára. Gestir hafa verið ákaflega ánægðir með að fá tækifæri til að njóta dags í sveitinni, fræðast um matvælaframleiðslu og kaupa vörur beint af býli. Oddný Anna Björnsdóttir er framkvæmdastjóri Beint frá býli og svarði nokkrum spurningum Vísis. Oddný Anna hvetur almenning, ekki síst fjölskyldufólk, til að gera sér dagamun þennan síðsumars sunnudag í kringum skólabyrjun.Aðsend Beint frá býli fyrir þá sem ekki þekkja til, hvað er það? „Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila (BFB) er félag bænda sem stunda eða hyggjast stunda sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Tilgangur félagsins er að hvetja til heimavinnslu og sölu beint frá bændum. Einnig að vinna að hagsmunum þeirra bænda sem stunda eða hyggjast stunda hverskonar framleiðslu og sölu á heimaunnum afurðum,“ segir Oddný og bætir við. „Meginmarkmið félagsins er að tryggja neytendum gæðavörur þar sem öryggi og rekjanleiki vöru er í fyrirrúmi. Félagið skal einnig hvetja til varðveislu hefðbundinna framleiðsluaðferða og kynningar á svæðisbundnum hráefnum og hefðum í matargerð. Félagið var stofnað þann 29. febrúar 2008 og er því orðið 17 ára.“ Og hver er tilgangur og markmið dagsins? „Tilgangurinn og markmiðið er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli, kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl á sviði smáframleiðslu matvæla. Jafnframt að íbúar hafi tækifæri til að njóta samveru í sveitinni og komast í beina snertingu staðina þaðan sem maturinn kemur og fólkið sem stendur á bakvið það,“ segir Oddný. Mikill aðsókn hefur verið á „Beint frá býli“ deginum enda margir forvitnir að fá að vita hvað sé helst að gerast í sveitum landsins.Aðsend Hvað eru margir framleiðendur/félagsmenn hjá ykkur og hvað er fólk helst að gera og fást við ? „Að deginum standa Samtök smáframleiðenda matvæla (SSFM) og Beint frá býli (BFB), en BFB varð aðildarfélag SSFM árið 2022 og deila framkvæmdastjóra sem jafnframt er verkefnisstjóri dagsins. Í SSFM/BFB eru nú ríflega 220 félagsmenn, þar af rúmur helmingur á lögbýlum, rúmur fimmtungur í þéttbýli á landsbyggðinni og annar fimmtungur á höfuðborgarsvæðinu". Dagurinn er alltaf mjög vinsæll og skemmtilegur.Aðsend Finnst þér vera vakning yfir vörum frá Beint frá býli eða hvað? „Svo sannarlega. Eftirspurnin er meiri en framboðið og anna bændur vart eftirspurn. Flestir gætu selt meira en þeir framleiða, ef þeir hefðu tíma til þess. Sífellt fjölgar í hópi beint frá býli bænda enda finna bændur vel fyrir þessari auknu eftirspurn. Beint frá býli vefurinn fær sem dæmi um 10.000 heimsóknir en auk hans eru flestir bændur með vef og/eða samfélagsmiðla þar sem hægt er að panta af þeim beint,“ segir Oddný. Eru Beint frá býli vörur dýrari en hefðbundnar landbúnaðarvörur eða hvað? „Það er erfitt að segja því það er oft ekki til neitt sambærilegt í almennum matvöruverslunum. Eins verðleggja bændur afurðir sínar ekki eins og þjónustan ólík. En almennt séð eru handunnar vörur úr hágæða hráefnum auðvitað dýrari en fjöldaframleiddar vörur“. „Tilgangurinn og markmiðið er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli, kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl á sviði smáframleiðslu matvæla," segir Oddný Anna um daginn.Aðsend Eruð þið að leggja sérstaka áherslu á íslenskt lambakjöt eða? „Nei, við leggjum jafna áherslu á allar vörur sem bændur framleiða en undanfarið hefur töluverður fókus og vinna félaganna farið í viðbrögð við lokun og sameiningu sláturhúsa,“ segir Oddný að lokum. Listi yfir býlin, sem verða opin frá kl. 13:00 til 16:00 sunnudaginn 24. ágúst.
Landbúnaður Matvælaframleiðsla Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira