„Galið og fáránlegt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. ágúst 2025 23:31 Halldór Jón Sigurðsson er þjálfari Tindastóls. Vísir/Vilhelm Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, er brjálaður yfir því að Brookelynn Paige Entz hafi ekki fengið heimild til að spila leik liðsins gegn Þrótti fyrr í kvöld. Hann segir bæði félög búin að ganga frá pappírum, en „einhver ríkisstofnun“ hafi komið í veg fyrir að hún mætti spila.
Brookelynn hefur spilað hér á landi síðan árið 2022, með Val, HK og í sumar með Grindavík. Hún er á leiðinni til Tindastóls en hefur ekki fengið leikheimild hjá nýja félaginu, eins og Halldór nefndi í viðtali eftir leik. „Við fengum leikmann í glugganum, sem fékk svo bara ekki leikheimild og ég er gríðarlega sár og svekktur með það. Að það hafi ekki verið hægt að græja þetta því allir pappírar voru til staðar og við skiluðum öllu til KSÍ en þetta festist hjá einhverri ríkisstofnun í þrjá daga. Galið og fáránlegt. Þetta er leikmaður sem er að skipta um félög innanlands, algjörlega út úr kortinu að það sé ekki hægt að græja þetta og ég er eiginlega bara brjálaður yfir þessu, gjörsamlega.“ sagði Halldór eftir leik. Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum veltu málinu fyrir sér en þurftu að játa sig sigraða og skildu ekki af hverju leikheimildin hefði tafist með þessum hætti. Þær voru þó allar sammála um að málið væri furðulegt, sérstaklega þar sem þetta eru félagaskipti innanlands og kæmi sér mjög illa fyrir Tindastól. „Ég skil alveg að hann sé pirraður af því þetta er öflugur leikmaður… Þetta er frábær leikmaður og mun hjálpa þeim mjög mikið, eðlilega er hann svekktur að þetta hafi ekki gengið í gegn. Hún hefði reynst þeim vel“ segir Ásta Eir Árnadóttir en umræðuna alla má sjá hér fyrir neðan.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Mest lesið Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Körfubolti Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu Fótbolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Dagskráin: Körfuboltakvöld, Man. United í beinni og úrslitaleikur um sæti í Bónus Sport Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira