Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 7. ágúst 2025 14:46 Icelandair bætti að mati Neytendastofu ekki nægilega vel úr upplýsingagjöf eftir ákvörðun stofnunarinnar árið 2023. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur sektað flugfélagið Icelandair um hálfa milljón króna fyrir að hafa ekki fylgt fyrri ákvörðun stofnunarinnar og veitt kaupendum nægilegar upplýsingar í kaupferli. Neytendastofa skammaði Icelandair meðal annars vegna misræmis milli skilmála og upplýsingasíðna á vef félagsins vegna svokallaðs skrópgjalds.
Málið má rekja til ársins 2023, þegar Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að neytendum væru ekki veittar nægar upplýsingar í kaupferli og beindi því fyrirmælum til félagsins að bæta úr upplýsingagjöf sinni. Neytendastofa beindi þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark. Einnig þyrfti félagið að tilgreina fjárhæð skrópgjalds eða hvernig það verði reiknað út og í hvaða tilvikum slíkt gjald sé lagt á farþega. Stofnunin fylgdi málinu eftir og komst að þeirri niðurstöðu að félagið hafi ekki bætt nægilega vel úr upplýsingagjöf og því brotið gegn ákvörðun Neytendastofu frá 2023. Auk þess gerði Neytendastofa athugasemdir við að ósamræmi væri á milli flutningsskilmála og upplýsinga sem veittar eru við kaup á flugmiðum hjá félaginu. Við miðakaup í flokknum Economy Light komi til að mynda fram að breytingar séu ekki leyfðar á slíkum flugmiðum en ef litið er á aðra skilmála félagsins komi fram að breytingar séu vissulega leyfðar. Hvað varðar skrópgjöld, það er ef farþegi mætir ekki í flug, hafi töluverða leit þurft á vefsíðunni til þess að finna upplýsingar um réttindi og kostnað við að viðhalda seinni flugleggjum ef farþegi ætlar ekki að nýta fyrri flug. Þá hafi misræmi verið milli skilmála og upplýsingasíðna hver réttur neytenda væri ef hann sleppir því að mæta í fyrri legg tveggja eða fleiri flugferða. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu sé farþega heimilt að nýta ekki fyrri legg farmiða án þess að það hafi áhrif á seinni legg ef hann tilkynnir félaginu um það fyrirfram og eftir atvikum greiði gjald og fargjaldamismun. Aftur á móti komi til dæmis fram undir flipanum „Skrópfarþegar“, þegar keyptur er miði í flokknum Economy Light, að ef farþegi skrópar í flug og nýti þar með ekki farmiðann sinn, fáist miðinn hvorki endurgreiddur né sé hægt að nýta hann síðar. Verði að gæta samræmis Þá var vakin athygli á því í ákvörðuninni að við málsmeðferð hafi verið vísað til fimm mismunandi skilmála eða upplýsingasíðna þar sem fram kemur mismunandi mikil upplýsingagjöf. Neytendastofa meti það svo að gera verði kröfu um að samræmis sé gætt í skilmálum eða upplýsingum sem seljendur veita neytendum. „Að mati Neytendastofu verður að telja að upplýsingar um rétt til breytinga séu upplýsingar sem almennt skipti máli fyrir neytendur og séu til þess fallnar að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti og kann eftir atvikum að hafa áhrif á ákvarðanatöku þeirra við bæði kaup á farmiða og hugsanlega nýtingu farmiða eða hluta hans. Þá verður að mati Neytendastofu að gera þær lágmarkskröfur til félagsins að upplýsingar sem veittar eru neytendum við farmiðakaup, upplýsingar sem fram koma í skilmálum og eftir atvikum aðrar upplýsingar er viðkoma samningssambandi neytenda og félagsins séu samræmdar,“ segir meðal annars í ákvörðuninni. Sem fyrr segir lagði Neytendastofa hálfrar milljónar króna stjórnvaldssekt á Icelandair vegna brots gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og brots gegn ákvörðun stofnunarinnar frá 2023.
Icelandair Neytendur Fréttir af flugi Mest lesið „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Viðskipti innlent Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Viðskipti erlent Stefna á gervigreindarver við Húsavík Viðskipti innlent Arnar og Eiríkur til Fossa Viðskipti innlent Fiskar komnir í fyrstu 25 metra eldistankana Viðskipti innlent Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Viðskipti innlent Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Íslendingar aldrei verið ferðaglaðari Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Súpan með pappírnum innkölluð Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Vísar ásökunum um samráð á bug Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Grunur um listeríu í vinsælum ostum Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn, Símanum og Nova Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Vara við eggjum í kleinuhringjum Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Svona verður hægt að horfa á enska boltann í vetur „Þær eru bara of dýrar“ Skamma og banna Play að blekkja neytendur Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“