Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2025 11:01 Ole Gunnar Solskjær ræddi það þegar hann var nálægt því að taka við írska landsliðinu. Getty/Stephen McCarthy/ Ole Gunnar Solskjær, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, var í viðræðum um að taka við írska karlalandsliðinu í fótbolta á síðasta ári.
Írska knattspyrnusambandið reyndi því að ráða Solskjær sem eftirmann Stephen Kenny en á endanum fékk Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson starfið. Solskjær tók síðan við tyrkneska félaginu Besiktas í janúar. Besiktas mætir írska liðinu St Patrick's Athletic í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld en þjálfari þess er einmitt fyrrnefndur Stephen Kenny. Solskjær ræddi það fyrir leikinn þegar hann var nálægt því að taka við írska landsliðinu árið 2024. BBC segir frá. „Ég átti nokkur góð samtöl við fulltrúa sambandsins um starfið,“ sagði Solskjær á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Það fór svo ekki svo að ég fengi starfið en ég er mjög ánægður þar sem ég er núna. Við skulum orða það þannig,“ sagði Solskjær. Heimir Hallgrímsson var ráðinn 10. júlí 2024 ellefu dögum eftir að hann hætti með landslið Jamaíka. Írska landsliðið hefur spilað tíu landsleiki undir stjórn Heimis til þessa og unnið fjóra þeirra. Besiktas datt úr Evrópudeildinni í síðustu viku eftir að hafa tapað 6-2 samanlagt á móti Shakhtar Donetsk. Liðið fær nú annað tækifæri í Sambandsdeildinni. Þeir spila nú fyrri leikinn við írska liðið í Dublin en þann seinni á heimavelli sínum í Istanbul. Hinn 52 ára gamli Solskjær átti mjög sigursælan feril sem leikmaður Manchester Untied og vann meðal annars þrennuna með félaginu 1999. Hann var síðan knattspyrnustjóri United frá 2018 til 2021, tók við af Jose Mourinho á miðju tímabili en var rekinn áður en United réði Erik ten Hag. Starfið hjá Besiktas var hans fyrsta starf í rúm þrjú ár.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti Fleiri fréttir „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Sjá meira