Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2025 11:21 Sigurður vann áður hjá Sensa, Origo og Nýherja. Sigurður H. Ólafsson hefur verið ráðinn viðskiptastjóri innviðalausnasviðs tæknifyrirtækisins Ofar. Innviðalausnir eru nýtt svið hjá Ofar en Sigurður býr að 30 ára reynslu úr upplýsingatæknigeiranum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ofar. Verkefni innviðalausna verða meðal annars ráðgjöf, sala og innleiðing á háþróuðum lausnum fyrir netþjóna, gagnageymslur, netbúnað, stórtölvur og kerfissölulausnir. „Meðal samstarfsaðila eru leiðandi tæknifyrirtæki á borð við Lenovo, IBM, Juniper, Fortinet, Nutanix, Cisco og Nvidia,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að Sigurður hafi áður starfað hjá fyrirtækjum á borð við Sensa, Origo og Nýherja. Hann er með sveinspróf í rafeindavirkjun og BA gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands með tölvunarfræði sem aukagrein. Sigurður er giftur Guðfinnu Hákonardóttur og þau eiga þrjú börn saman. „Sigurður kemur til liðs við okkur með dýrmæta þekkingu og áratuga reynslu sem styrkir öflugt teymi Innviðalausna hjá Ofar. Við leggjum mikla áherslu á að byggja upp langtímasambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila. Sigurður passar fullkomlega inn í þá sýn,“ segir Jón Mikael Jónsson, framkvæmdastjóri Ofar. „Það er gaman að stíga inn í nýtt hlutverk á þessum spennandi tímapunkti. Ofar er að stækka hratt og það er skýr sýn á að verða leiðandi í lausnum fyrir innviði. Ég hlakka til að vera hluti af þeirri vegferð,“ er haft eftir Sigurði í tilkynningunni.
Vistaskipti Upplýsingatækni Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira