Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Árni Sæberg skrifar 9. júlí 2025 15:14 Margir kannast eflaust við Atla Óskar af skjánum. Akademias hefur ráðið Atla Óskar til að stýra rekstri framleiðsludeildar Akademias en Akademias framleiðir rafræn námskeið, verkefni og leiki fyrir starfsmannaþjálfun á vinnustöðum
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Atli hafi lokið gráðu í leiklist og kvikmyndagerð í Los Angeles árið 2017. Hann hafi verið tilnefndur tvívegis til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn og hafi verið valinn í hina virðulegu „Shooting Stars“ dagskrá á Berlinale kvikmyndahátíðinni árið 2016. Atli hafi komið að fjölda stórra framleiðsluverkefna fyrir ýmis fyrirtæki í kvikmyndabransanum hérlendis og erlendis. Til viðbótar sé Atli nú að vinna að meistararannsókn í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. „Atli kemur með mikla reynslu og þekkingu inní framleiðsluna okkar. Það hefur verið mikill vöxtur í framleiðslunni okkar en sífellt fleiri vinnustaðir eru að uppgötva hagræðið og kraftinn sem felst í starfsmannaþjálfun með rafrænni fræðslu. Undanfarin fjögur ár hefur Akademias framleitt yfir 350 námskeið fyrir um 150 viðskiptavini. Við stöndum líka á miklum tímamótum í þróun á rafrænu námsefni þar sem gervigreind, leikir og gagnvirk verkefni eru farin að spila sífellt stærri þátt,“ er haft eftir Guðmundi Arnari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Akademias. Haft er eftir Atla að hann sé spenntur fyrir nýju hlutverki: „Það er mikill kraftur í teyminu hjá Akademias og er ég fullur tilhlökkunnar til að takast á við þetta nýja hlutverk og styðja við frekari vöxt og þróun.“ Akademias hafi mikla reynslu af fjölbreyttri framleiðslu fyrir allar atvinnugreinar. Í samstarfi við viðskiptavini framleiði þau til að mynda nýliða-, öryggis-, gæða-, þjónustu- og sölunámskeið ásamt kennslu í mismunandi kerfum. Framleiðsluteymi Akademias geri viðskiptavinum kleift að fá rafrænt námsefni með lágmarksfyrirhöfn og kostnað að leiðarljósi.
Vistaskipti Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira