Fyrirliði þýska liðsins fór grátandi af velli en þær þýsku unnu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2025 20:55 Jule Brand fagnar hér frábæru marki sínu fyrir þýska landsliðið í kvöld. Getty/Matthias Hangst Þýskaland byrjaði Evrópumót kvenna í fótbolta á sigri í Sviss í kvöld en það var þó enginn stórsigur eins og sumir bjuggust við. Þýskaland vann 2-0 sigur á Póllandi eftir að það var markalaust í hálfleik. Pólsku stelpurnar voru að spila sinn fyrsta leik í Evrópukeppni frá upphafi og héldu út fram á 52. mínútu. Þá tók Jule Brand sig til, keyrði upp að vítateignum og skoraði með frábæru skoti upp í fjærhornið. Mark mótsins hingað til. Lea Schüller kom þýska liðinu í 2-0 á 66. mínútu með skalla eftir stoðsendingu frá Brand. Skömmu síðar hafði hún skallað yfir úr dauðafæri. Þýsku stelpurnar sköpuðu sér mun fleiri færi í seinni hálfleik en þær pólsku voru líka skeinuhættar. Þýska liðið varð fyrir miklu áfalli í fyrri hálfleiknum þegar fyrirliðinn Giulia Gwinn fór grátandi af velli. Gwinn meiddist á hné við það að bjarga frábærlega þegar markadrottningin Ewa Pajor var komin í dauðafæri. Miðað við viðbrögðin hjá Gwinn þá gæti þetta verið alvarlegt en vonandi ekki. Pajor minnti reglulega á sig í leiknum og var oft nálægt því að skora fyrir pólska liðið. EM 2025 í Sviss Fótbolti