Flagg fer til Dallas Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. júní 2025 07:50 Cooper Flagg var valinn fyrstur og hittir fleiri fyrrum Duke nemendur í Dallas. Mike Lawrie/Getty Images Dallas Mavericks völdu Cooper Flagg frá Duke háskólanum, eins og búist var við, með fyrsta valréttinum í nýliðavali NBA sem fór fram í nótt.
Dallas setti met í heppni þegar liðið vann nýliðalottóið með aðeins 1,8 prósent sigurlíkur, skömmu eftir að hafa mjög óvænt skipt stærstu stjörnu liðsins til Los Angeles Lakers. Svo ótrúlegt þótti það, að NBA sérfræðingar voru handvissir um að engin heppni hefði verið á ferðum, heldur svindl. Hverju sem líður fékk Dallas fyrsta valréttinn og aldrei var spurning um hver yrði fyrir valinu. Sá heitir Cooper Flagg og hefur verið í efsta sæti á öllum nýliðalistum síðan hann útskrifaðist úr menntaskóla ári fyrr og fór í háskólann Duke. Sex feta og átta tommu hái framherjinn verður nítján ára næstkomandi desember. Hann gengur til liðs við lið sem missti af úrslitakeppninni á síðasta tímabili eftir að hafa misst lykilmenn í meiðsli. ESPN reiknar með honum í byrjunarliðinu á næsta tímabili, í stöðu skotframherja, með kraftframherjanum Anthony Davis og öðrum hvorum miðherjunum, Dereck Lively eða Daniel Gafford. Leikstjórnandi liðsins, Kyrie Irving, sleit krossband í mars síðastliðnum og mun missa af fyrri hluta næsta tímabils en er væntanlegur um eða eftir áramótin. Þeir gætu þá orðið þrír, leikmenn Dallas sem komu úr Duke háskólanum. Kyrie Irving kom þaðan og var valinn fyrstur í nýliðavalinu árið 2011, Dereck Lively einnig en var valinn tólfti af Dallas árið 2023.
Körfubolti NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira