Silkeborg til Akureyrar og leið Vals, Víkings og Breiðabliks ljósari Sindri Sverrisson skrifar 18. júní 2025 12:29 KA fer beint í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar, sem bikarmeistari. vísir/Diego KA-menn mæta Silkeborg frá Danmörku í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta, þegar þeir mæta til leiks í 2. umferð í lok júlí. Nú liggur einnig fyrir hvaða liðum Valur, Víkingur og Breiðablik gætu mætt í sömu umferð.
KA fékk undanþágu frá UEFA til að spila heimaleik sinn á Greifavellinum og því er ljóst að Silkeborg, silfurlið dönsku bikarkeppninnar, mætir norður á heimavöll íslensku bikarmeistaranna. Fyrri leikur liðanna verður í Danmörku 24. júlí en sá seinni á Akureyri 31. júlí en 2. umferðin er spiluð á þessum dögum. Valur til Litháens eða Wales? Valur og Víkingur leika fyrst í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar en nú er einnig ljóst hvaða lið gætu beðið þeirra í 2. umferðinni. Valur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi í fyrstu umferð og mun sigurliðið svo mæta Kauno Zalgiris frá Litháen eða Penybont frá Wales. Víkingar til Albaníu eða Lettlands? Víkingur mætir Malisheva frá Kósovó í fyrstu umferð og svo vonandi Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi. Íslandsmeistarar Breiðabliks gætu svo mögulega orðið fjórða íslenska liðið í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Það gerist ef að Blikar falla úr leik gegn albanska liðinu Egnatia í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Blikar myndu þá mæta annað hvort Ludogorets frá Búlgaríu eða Dinamo Minsk frá Hvíta-Rússlandi. Ef að Breiðablik hins vegar vinnur Egnatia þá mun liðið halda áfram í undankeppni Meistaradeildarinnar og mæta þar pólsku meisturunum í Lech Poznan.
Besta deild karla Sambandsdeild Evrópu KA Breiðablik Víkingur Reykjavík Valur Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira