Stólaleikur í Svörtuloftum Árni Sæberg skrifar 13. júní 2025 15:08 Höfuðstöðvar Seðlabankans eru í Svörtuloftum við Kalkofnsveg. Vísir/Vilhelm Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Seðlabanka Íslands. Breytingar eru þó þess eðlis að enginn hættir og enginn nýr kemur til starfa, heldur skipta þrír stjórnendur aðeins um stóla.
Í tilkynningu á vef Seðlabankans segir að Sturla Pálsson, sem gengt hafi stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta, síðastliðin tuttugu ár taki við sem forstöðumaður skilavalds Seðlabanka Íslands. Haukur C. Benediktsson, sem gengt hafi stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs, sé settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og Flóki Halldórsson, sem gegnt hafi stöðu forstöðumanns skilavalds, sé settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika. Frá vinstri: Sturla, Haukur og Flóki.Seðlabanki Íslands Sturla hafi starfað samfleytt í Seðlabanka Íslands frá árinu 2001. Áður hafi hann starfað í Íslandsbanka, hjá Hagstofunni og þar áður í Seðlabankanum. Árið 2005 hafi hann orðið framkvæmdastjóri sviðs markaðsviðskipta í Seðlabankanum og gegnt þeirri stöðu síðan. Sturla hafi um tíma setið í stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. Sturla sé með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og masterspróf í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Haukur hafi hafið störf í Seðlabankanum árið 2001 og starfað til ársins 2006 en verið ráðinn aftur til bankans í janúar 2009. Hann hafi sinnt starfi framkvæmdastjóra Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. frá janúar 2013 allt þar til félagið var lagt niður í febrúar 2019. Síðastliðin ár hafi Haukur gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Haukur sé með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics. Flóki hafi starfað í aldarfjórðung á fjármálamörkuðum og í Seðlabanka Íslands. Síðustu fimm ár hafi hann veitt forstöðu skrifstofu skilavalds hjá Seðlabanka Íslands. Áður en hann gekk til liðs við Seðlabankann hafi hann verið framkvæmdastjóri sjóðafyrirtækisins Stefnis um tíu ára skeið. Flóki sé með Executive MBA gráðu frá Copenhagen Business School og hafi lokið grunnnámi í hagfræði við Háskóla Íslands.
Seðlabankinn Vistaskipti Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira