Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Árni Sæberg skrifar 10. júní 2025 15:08 Parka lausnir, sem sjá meðal annars um innheimtu bílastæðagjalda á Höfðatorgi, hlutu hæstu sektina. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna.
Gjaldskyld bílastæði hafa verið talsvert milli tannanna á fólki síðan þau tóku að spretta upp eins og gorkúlur um allt land. Fyrirtæki sem reka bílastæðin hafa verið harðlega gagnrýnd og Félag íslenskra bifreiðaeiganda benti Neytendastofu á það í fyrra að tilefni gæti verið til að rannsaka viðskiptahætti þeirra. „Neytendastofa er búin að staðfesta móttöku og okkur skilst að það sé farin rannsókn í gang,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við fréttastofu á sínum tíma. Nú hefur rannsókn Neytendastofu borið ávöxt. Parka hlaut hæstu sektina Á vef Neytendastofu segir að stofnunin hefði komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita ekki upplýsingar um öll gjöld tengd stæðunum. Fyrirtækin sem um ræðir eru Isavia, vegna gjaldheimtu við Reykjavíkurflugvöll, Parka lausnir ehf., Easypark og Green parking ehf. Sektirnar voru á bilinu 200 þúsund krónur til einnar milljónar króna, sem Parka ber að greiða. Afmörkun ekki nægilega skýr Þá hafi Neytendastofa talið um að ræða brot á lögum í þeim tilvikum þar sem afmörkun gjaldskyldra bílastæða var ekki nægilega skýr auk þess sem það teldust villandi viðskiptahættir að láta líta út fyrir að sjálfvirk greiðslukerfi eða gjaldtaka væru til staðar, án þess að taka fram að slíkt þyrfti að virkja sérstaklega eða kerfið ekki til staðar. Loks hafi stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að í einu tilfelli hafi fyrirtæki, Parka, brotið gegn reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir með því að upplýsa neytendur ranglega um að þjónusta þess sé endurgjaldslaus.
Bílastæði Neytendur Bílar Tengdar fréttir Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. 3. júní 2025 21:03 Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Eigendur fataverslunarinnar Gyllta kattarins, sem rekin hefur verið við Austurstræti í tvo áratugi, hafa gefist upp á því að reka verslun í miðborginni. „Dagur eyðilagði þetta, það er bara þannig,“ segir annar þeirra. 19. maí 2025 20:32 Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. 3. júní 2025 21:03
Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Eigendur fataverslunarinnar Gyllta kattarins, sem rekin hefur verið við Austurstræti í tvo áratugi, hafa gefist upp á því að reka verslun í miðborginni. „Dagur eyðilagði þetta, það er bara þannig,“ segir annar þeirra. 19. maí 2025 20:32