Bíó og sjónvarp

Villeneuve leik­stýrir næstu mynd um James Bond

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Denis Villeneuve heldur um leikstjórnartaumana á næstu Bond-mynd sem kemur sennilega ekki út fyrr en 2027 eða 2028.
Denis Villeneuve heldur um leikstjórnartaumana á næstu Bond-mynd sem kemur sennilega ekki út fyrr en 2027 eða 2028. Getty

Kanadíski leikstjórinn Denis Villeneuve mun leikstýra næstu mynd um breska spæjarann James Bond fyrir Amazon MGM Studios sem keyptu réttinn að seríunni í febrúar.

Amazon greindu frá ráðningunni í tilkynningu rétt eftir miðnætti í gær. 

Myndin verður sú 26. um spæjarann en sú fyrsta sem Amazon MGM Studios framleiða. Myndin verður framleidd af þeim Amy Pascal og David Heyman og yfirframleiðandi verður Tanya Lapointe. Enn er leitað að næsta Bond en ýmsir leikarar hafa verið orðaðir við hlutverkið.

Amazon keypti MGM Studios fyrir 8,5 milljarða Bandaríkjadala árið 2021 og sýningarréttinn að James Bond. Broccoli-fjölskyldan, sem hafði átt réttinn að James Bond frá 1962, hélt þó fullri stjórn yfir þróun seríunnar (e. creative control) og voru treg til við að halda áfram með seríuna. Amazon MGM keyptu Barböru Broccoli og Michael G. Wilson út í febrúar og er stúdíóið því komið með fulla stjórn á seríunni.

Fylgst hefur verið náið með leikstjórnarleitinni fyrir næstu Bond-mynd frá því Amazon tók yfir og var fjöldi leikstjóra orðaður við myndina, þ.á m. Edward Berger, Edgar Wright, Jonathan Nolan, Paul King og Cuarón, sem hefur unnið mikið með framleiðandanum Heyman gegnum tíðina.

Kann að gera stórmyndir

Ráðning Villeneuve kemur kannski einhverjum á óvart þar sem hann er í miðjum klíðum að gera geimepíkina Dune: Messiah sem fylgir eftir fyrri myndunum tveimur sem komu út 2021 og 2024. Tökur á þriðju myndinni standa enn yfir og kemur hún ekki út fyrr en 16. desember 2026.

Villeneuve hefur hins vegar sýnt og sannað að hann er fullfær um að gera stórar stúdíómyndir, á undan Dune-myndunum leikstýrði hann sæfæ-myndinni Blade Runner 2049 (2017), Arrival (2016) og Sicario (2015).

„Sumar af mínum fyrstu bíó-minningum tengjast 007. Ég ólst upp við að horfa á James Bond-myndir með pabba mínum, alveg frá Dr. No með Sean Connery. Ég er ódrepandi Bond-aðdáandi. Fyrir mér er hann heilagur. Ég ætla mér að heiðra hefðina og opna slóðina fyrir mörg ný verkefni,“ sagði Villeneuve í tilefni af ráðningunni.


Tengdar fréttir

Bölvað basl á Bond

Innan veggja Amazon hefur lítið sem ekkert gengið að endurvekja James Bond, ofurnjósnarann breska og ímyndaða, frá því Daniel Craig hætti að leika hann og síðasta myndin kom út árið 2021.

„Hann er með svona Connery áru yfir sér“

Breska götublaðið The Sun fullyrti í vikunni að breska leikaranum Aaron Taylor-Johnson hefði verið boðið hlutverk njósnara hennar hátignar James Bond. Aðdáendurnir Pétur Ívarsson og Marín Eydal Sigurðardóttir eru bæði ánægð með valið og ganga svo langt að segja að það sé svipur með Aaron og hinum upprunalega Bond, sjálfum Sean Connery.

Tökur hefjist í fyrsta lagi eftir tvö ár

Aðdáendur ofurnjósnarans James Bond þurfa að sætta sig við dágóða bið eftir næstu mynd samkvæmt upplýsingum frá Barböru Broccoli, framleiðanda myndanna. Framleiðsla myndarinnar muni ekki hefjast fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.