Þróttur geti klárlega landað titlinum: „Mér finnst þetta stórkostlegt lið“ Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2025 15:47 Þróttarar eru á toppi Bestu deildarinnar en mótið er rétt að byrja. vísir/Guðmundur Þróttarar fengu mikið hrós í Bestu mörkunum fyrir framgöngu sína það sem af er leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta. Meistarakandídatar, segja sérfræðingarnir. „
Alveg hundrað prósent. Þetta er eina liðið sem er búið að spila á móti Breiðabliki þannig að Breiðablik átti að tapa þeim leik. Þróttarar voru bara miklu betri, finnst mér,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir en brot úr nýjasta þætti Bestu markanna má sjá hér að neðan. Klippa: Bestu mörkin - Þróttarar að slá í gegn Eftir sjö umferðir hafa Þróttarar unnið alla leiki sína fyrir utan jafnteflið við Breiðablik í annarri umferð og sitja á toppi deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan Blika, í landsleikjahléinu til 7. júní. „Ég er búin að spá þeim oft ofarlega, nálægt titlinum. Ég spáði því í fyrra eða hitteðfyrra að þær myndu vinna og ég held að það sé að detta í að það komi að því,“ sagði Bára og Þóra B. Helgadóttir tók undir: „Mér finnst þetta stórkostlegt lið. Óli [Kristjáns, þjálfari Þróttar] er klárlega að gera frábæra hluti. En Breiðabliksliðið er ansi sterkt líka,“ sagði Þóra. „Ef þú tekur maður fyrir mann þá ætla ég að segja að Blikarnir séu betri á pappír en mér finnst kemistrían og það sem Óli er að ná út úr sínu liði vera eins og best verður á kosið,“ sagði Bára og Þóra bætti við: „Þetta er öfugsnúið við Val. Þarna eru leikmenn að spila mögulega yfir þeirri getu sem við héldum að væri þarna, á meðan það er öfugt hjá Val.“
Bestu mörkin Þróttur Reykjavík Besta deild kvenna Mest lesið Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deildinni Sport Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Fleiri fréttir „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Sjá meira