Lífið

Sendi ræningjunum skýr skila­boð þakin demöntum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kim Kardashian mætti þakin demöntum í dómsal fyrr í vikunni.
Kim Kardashian mætti þakin demöntum í dómsal fyrr í vikunni. Getty

Kim Kardashian, raunveruleikastjarnan og athafnakonan fræga, mætti í dómsal í París fyrr í vikunni þar sem hún mætti mönnunum sem rændu hana vopnaðir byssum árið 2016. Hún sendi þeim skýr skilaboð með því að mæta þakin demöntum að andvirði sjö milljón dollara.

Kardashian hefur sagt frá því að hún hafi verið sannfærð um að hún myndi deyja og segir ránið hafa haft gífurlega mikil og slæm áhrif á hana. Menn sem klæddust lögreglubúningum ruddust vopnaðir inn í hótelherbergi hennar í október 2016. Þar bundu þeir hana og lögðu hana í baðkar á meðan þeir rændu skartgripum úr herberginu fyrir margar milljónir dala. 

Meðal annars tóku þeir 18,8 karata demanta trúlofunarhring sem hún hafði fengið frá Kanye West, fyrrverandi eiginmanni hennar. Flestir skartgripirnir hafa ekki fundist.

Kim Kardashian á leið í dómshúsið í París fyrr í vikunni.AP/Aurelien Morissard

Demantar miðpunktur málsins

Kardashian vakti mikla athygli þegar hún mætti í dómsalinn þakin demöntum og klædd eins og sannri stórstjörnu sæmir. Með henni var móðir hennar, Kris Jenner, í klassískri köflóttri kápu og svörtum buxum.

Kardashian klæddist svörtum vintage-jakkakjól eftir breska hönnuðinn John Galliano frá árinu 1995, oddmjóum hælaskóm frá Saint Laurent. Hún toppaði svo lúkkið með svörtum sólgleraugum frá Alaïa og setti hárið upp í fágaðan snúð.

Getty

Aðalathygli vakti hálsmenið hennar úr 18 karata hvítagulli með 80 demöntum. Það vegur 52,17 karöt og er metið á um þrjár milljónir dollara, eða yfir 400 milljónir íslenskra króna. Hálsmenið er eftir hinn virta skartgripahönnuð Samer Halimeh frá New York.

Auk hálsmensins skartaði Kardashian stærðarinnar demantshring, eyrnalokkum frá Repossi, eyrnaklemmu frá Briony Raymond, armbandi úr hvítagulli og glitrandi ökklabandi. Samkvæmt Page Six er allt skartið metið á samtals sjö milljónir dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.