Erlent

Tugir sagðir liggja í valnum eftir loft­á­rásir

Samúel Karl Ólason skrifar
Palestínumenn syrgja ættingja sína sem féllu í ársum í gærkvöldi og í nótt.
Palestínumenn syrgja ættingja sína sem féllu í ársum í gærkvöldi og í nótt. AP/Jehad Alshrafi

Tugir eru sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Ísraela í norðurhluta Gasastrandarinnar í gærkvöldi og í nótt. Forsvarsmenn indónesíska sjúkrahússins segja að minnsta kosti 22 börn og fimmtán konur meðal þeirra sem dóu.

Þeir segja árásirnar hafa verið gerðar á hús og flóttamannabúðir í Jabalia. Heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas-samtökunum, segja að minnsta kosti 53 hafa fallið í árásunum.

Talsmenn ísraelska hersins hafa ekki viljað tjá sig um árásirnar við fjölmiðla ytra í morgun að öðru leyti en að segja að íbúar á svæðinu hafi verið varaðir við væntanlegum árásum. Það hafi verið gert eftir að eldflaugum hafi verið skotið frá svæðinu, samkvæmt frétt Sky News.

Fyrr í gær vörpuðu Ísraelar einnig öflugum sprengjum, sem virðast hannaðar til að granda neðanjarðarbyrgjum, á bílastæði við hið svokallaða evrópska sjúkrahús í suðurhluta Gasastrandarinnar. Heilbrigðisráðuneytið segir að minnsta kosti 28 hafa fallið í þeim árásum, samkvæmt frétt BBC.

Ísraelar segja þær árásir hafa beinst að stjórnstöð Hamas-samtakanna undir sjúkrahúsinu og hefur þí verið haldið fram að Mohammed Sinwar, sem varð leiðtogi Hamas-samtakanna eftir að bróðir hans Yahya Sinwar, var felldur í október, hafi verið í byrginu.

Það hefur ekki verið staðfest.

Vill koma í veg fyrir þjóðarmorð

Tom Fletcher, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, kallaði í gær eftir því að Öryggisráðið gripi til aðgerða til að koma í veg fyrir „þjóðarmorð“ á Gasaströndinni. Hann sakaði ráðamenn í Ísrael um að valda vísvitandi hörmulegum aðstæðum á svæðinu og óbreytta borgara þar.

Fletcher kallaði eftir því að Ísraelar hleyptu aftur birgðum og neyðaraðstoð inn á Gasa, sem þeir hafa ekki gert í um tíu vikur. Þá gagnrýndi hann yfirlýstar ætlanir Ísraela um að taka yfir stjórn á dreifingu neyðaraðstoðar.

Ráðamenn í Ísrael hafa lýst því yfir að þeir ætli að auka umfang hernaðar þeirra á Gasaströndinni.

Yfirvöld í Ísrael hafa samþykkt áætlun um að hernema Gasaströndina alfarið á næstu mánuðum og halda svæðinu um óákveðinn tíma. Verið er að kalla tugi þúsunda varaliðsmanna til herþjónustu sem eiga að taka þátt í hernáminu.


Tengdar fréttir

Láta bandarískan gísl lausan

Hamasliðar tilkynntu í dag að þeir hygðust leysa Bandaríkjamanninn Edan Alexander úr haldi. Hann er síðasti eftirlifandi gíslinn í þeirra haldi með bandarískt ríkisfang en hann er búinn að vera í gíslingu á Gasaströndinni frá sjöunda október 2023.

„Hefðum viljað sjá stóru löndin taka stærri skref í átt að mannúð á Gasa“

„Því fleiri lönd sem tala skýrt fyrir því að Ísraelar verði að koma að mannúðaraðstoð á Gasa því betra,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Hún og utanríkisráðherrar fimm annarra Evrópuríkja sendu í morgun frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa. 

„Ástandið er að versna“

Sérfræðingur í varnarmálum segir ljóst að með auknum hernaðaraðgerðum Ísraelshers á Gasa ætli Ísrael að ganga endanlega milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, og reyna bjarga þeim gíslum sem enn kunnu að vera á lífi, um 25 manns. Hann segir erfitt að stunda umfangsmiklar hernaðaraðgerðir í þéttbýli á þröngu og litlu svæði eins og Gasa, og það hafi óneitanlega í för með sér mikið mannfall og mannskaða.

Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, boðar „nýjar og harðari“ aðgerðir á Gaza með það að markmiði að útrýma Hamas-samtökunum. Stjórnvöld í Ísrael höfðu þegar boðað stórsókn á Gasa en ríkisstjórnin samþykkti í morgun að hernema Gasaströndina og halda svæðinu um óákveðinn tíma. Í myndbandi sem forsætisráðherrann birtir á samfélagsmiðlum nú síðdegis bætir hann í og segir meðal annars að íbúar Gasa verði fluttir burt „í þágu eigin öryggis.“

Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa

Ísraelar munu ekki hörfa aftur frá Gasaströndinni, jafnvel þó gerður verður annar samningur um fangaskipti við Hamas-samtökin. Þetta segir Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, en hann segir að Ísraelar eigi að hætta að óttast orðið „hernám“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×