Ástin blómstrar hjá Steinunni Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 11. mars 2025 16:03 Steinunn Ólína fann ástina í örmum Gunnar Gylfasonar framkvæmdastjóra. Kári Sverrisson Leik- og fjölmiðlakonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur fundið ástina í örmum Gunnars Gylfasonar framkvæmdastjóra. Parið hefur verið að hittast undanfarið og virðist lífið leika við þau.
Steinunn birti fallega færslu til Gunnars á Facebook í gær þar sem hún skrifaði: „Ástin, þú ert það skemmtilegasta, fallegasta og besta sem hefur gerst,“ skrifaði Steinunn. Gunnar svaraði Steinunni á fallegum nótum og kallaði hana ástina sína. Þá sást til nýja parsins í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu liðna helgi þar sem þau létu vel hvort að öðru. Neistarnir í loftinu leyndust ekki neinum sem til sá. Náði sér í jólakærasta Steinunn Ólína og Halldóra Geirharðsdóttir leikkona voru gestir Ásu Ninnu Pétursdóttur á Bylgjunni á aðfangadegi, þar sem Steinunn deildi því að hún hefði nú „náð sér í jólakærasta“. Ætla má að umræddur kærasti sé Gunnar. Hún sagði frá því að vinur hennar, Helgi Jean Classen annar hlaðvarpsstjórnandi HæHæ, hefði það til siðs að eignast kærustu um jólin, eða jólakærustu, og hún hafi nú sjálf fylgt þessu trendi. Í þættinum velti Steinunn því fyrir sér hvenær skilafresturinn myndi renna út, þó hún hefði ekki í hyggju að skila kærastanum, en hún vildi bara vita nákvæma dagsetningu. „Núna náði ég mér í jólakærasta. Mér skilst að skilafresturinn sé út janúar. Þarf maður að klára að skila fyrir 15. janúar eða 30.?“ spurði Steinunn á kómískan máta. Vongóð eftir Valentínusardaginn Ása Ninna svaraði fljótt: „Ég veit það. Það er eftir Valentínusardaginn. Það er án gríns búið að rannsaka þetta. Það eru margir sem hætta saman eftir Valentínusardaginn.“ Ása velti því fyrir sér í útvarpsþættinum hvort Steinunn ætlaði að gefa kærastanum sínum jólagjöf, enda væru þau nýlega byrjuð saman. „Eins og þú, ert nú nýkomin með kærasta. Ertu það nýkomin með hann að þú getir ekki gefið honum jólagjöf? Eða ætlarðu að gefa honum eitthvað?“ spurði Ása kímin. Steinunn Ólína svaraði hlæjandi og tók grínið alla leið. „Ég sprengdi mig alveg og keypti handa honum flygil, mótorhjól, víxil og miða í heimsreisu. Maður er náttúrulega orðinn svo gamall að maður er pínu desperate,“ sagði Steinunn Ólína og skellti upp úr. Ása var þó bjartsýn á að sambandið ætti von, að minnsta kosti ef það entist fram á vor. „Dóra (Halldóra Geirharðsdóttir), þú gætir fylgst með þessu og tekið stöðuna eftir Valentínusardaginn. Ef þetta dugar fram í mars, apríl eða fram á vorið, þá er þetta eitthvað,“ sagði Ása á léttum nótum. Steinunn tók undir og bætti við á léttum nótum: „Þá þarf maður ekkert að velta fyrir sér hvort þetta gangi eða ekki – maður sér bara hvernig staðan er 14. febrúar.“ Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan: Steinunn hefur átt farsælan feril sem leikkona og fjölmiðlakona og var meðal þeirra sem buðu sig fram til embættis forseta Íslands í apríl á síðasta ári. Hún er leikari hjá Þjóðleikhúsinu og hefur meðfram sviðsframkomu leikið í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Hún var gift leikaranum Stefáni Karli Stefánssyni í sextán ár. Hann lést 21. ágúst 2018 eftir tveggja ára baráttu við illvígt gallgangakrabbamein. Saman eignuðust þau fjögur börn. Gunnar er menntaður í viðskiptum og hagfræði og hefur um langt árabil starfað við eigin rekstur. Hann á þrjár dætur og var áður í sambandi með kvikmyndagerðarkonunni Veru Wonder Sölvadóttur. Þá var hann sambýlismaður Snæfríðar Baldvinsdóttur, fyrrverandi lektors við Háskólann á Bifröst, sem lést fyrir aldur fram árið 2012.
Ástin og lífið Tímamót Jól Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Í kossaflensi á listasýningu Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira