Einn látinn eftir árekstur í Berufirði Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. mars 2025 15:54 Áreksturinn átti sér stað á hringveginum milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur. Vísir/Vilhelm Einn hefur verið úrskurðaður látinn eftir árekstur tveggja bíla á Hringveginum á milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur. Hinir þrír um borð í bílunum voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Þar segir að lögreglunni hafi borist tilkynning um umferðarslys á milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur, skammt frá bænum Krossi um 11:45. Um var að ræða árekstur tveggja ökutækja, sem óku úr gagnstæðum áttum og skullu saman. „Strax var ljóst að um alvarlegt slys væri um að ræða og var allt tiltækt lið lögreglu sent á staðinn, sjúkralið í Fjarðabyggð auk tækjabifreiða frá Djúpavogi og úr Fjarðabyggð,“ segir í tilkynningunni. „Einn var úrskurðaður látinn á vettvangi en aðrir voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar undir læknishendur á Landsspítalann í Reykjavík,“ segir einnig. Að sögn Hjalta Bergmar Axelssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Austurlandi, voru ferðamenn í öðrum bílnum en Íslendingar í hinum. Rannsókn á vettvangi stendur nú yfir og segir lögreglan að búast megi við að vegurinn verði lokaður fram á kvöld. Rannsókn slyssins er á höndum rannsóknardeildar Lögreglustjórans á Austurlandi auk rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Samgönguslys Múlaþing Umferðaröryggi Fjarðabyggð Tengdar fréttir Tvær þyrlur kallaðar út vegna alvarlegs umferðarslyss í Berufirði Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar til Berufjarðar upp úr hádegi vegna alvarlegs tveggja bíla umferðarslyss á hringveginum milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur, skammt frá bænum Krossi. 9. mars 2025 12:46 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira
Tvær þyrlur kallaðar út vegna alvarlegs umferðarslyss í Berufirði Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar til Berufjarðar upp úr hádegi vegna alvarlegs tveggja bíla umferðarslyss á hringveginum milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur, skammt frá bænum Krossi. 9. mars 2025 12:46