Viðskipti erlent

Setur háa tolla á Evrópu

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að hann ætlaði að setja 25 prósenta tolla á vörur sem fluttar eru frá ríkjum Evrópusambandsins til Bandaríkjanna. Hann skammaðist út í Evrópusambandið og sagði það hafa verið myndað til að koma höggi á Bandaríkin.

Ekki liggur fyrir hvort umræddir tollar eigi við EES-ríkin, eins og Ísland, en Trump sagði að tollarnir yrðu opinberaðir frekar „á næstunni“.

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, sagði við þarlenda blaðamenn að skilaboðin frá Bandaríkjunum væru alvarleg. En ummæli hans um að Norðmenn þurfi að passa hvernig þeir koma út úr mögulegu tollastríði ESB og Bandaríkjanna gefa til kynna að hann telji að tollarnir nái ekki yfir EES-ríkin.

Þetta sagði Trump á ríkisstjórnarfundi í Washington DC. Þar sagði hann einnig að tollarnir yrðu almennir en nefndi bíla sérstaklega. Hann sagði Evrópusambandið hafa misnotað Bandaríkin og að allir þyrftu að hafa á hreinu að ESB hefði verið stofnað til að arðræna Bandaríkin (e: Screw with the United states).

Það hefði verið tilgangurinn með stofnun ESB og ráðamenn í Evrópu hefðu staðið sig vel í því, hingað til.

Hann sagði einnig að tollar sem átti að setja á vörur frá Mexíkó og Kanada, en var frestað um mánuð, tækju gildi þann 2. apríl.

Sjá einnig: Her­menn halda að landa­mærum og Trump frestar tollum

Trump hefur lengi kvartað yfir viðskiptahalla gagnvart Evrópu og sagt að Evrópuríkin ættu að flytja inn fleiri bíla frá Bandaríkjunum. Það ítrekaði hann í dag.

Forsetinn hefur áður hækkað tolla sem hann setti á Kína á sínu fyrra kjörtímabili og Joe Biden hélt.

Bandaríkin eru helsta viðskiptaríki Íslands. Árið 2023 fluttum við vörur fyrir 306 milljarða króna til Bandaríkjanna og fluttum vörur fyrir 77,9 milljarða inn frá Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Fólk þurfi að anda ofan í kviðinn

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir leiðtoga Evrópu uggandi en að samband Evrópu og Bandaríkjanna sé ekki að versna heldur breytast. Hún ræddi við fréttastofu um vendingar í alþjóðamálunum að lokinni umfangsmikilli öryggisráðstefnu í München sem hún sótti ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×