Íslenski boltinn

Ætla að spila í Grinda­vík: „Á­byrgð mín að koma liðinu heim“

Aron Guðmundsson skrifar
Haukur Guðberg Einarsson er formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Hann sagði það á ábyrgð sinni á sínum tíma að koma deildinni í var. Nú sé það hans ábyrgð að koma deildinni aftur heim til Grindavíkur
Haukur Guðberg Einarsson er formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Hann sagði það á ábyrgð sinni á sínum tíma að koma deildinni í var. Nú sé það hans ábyrgð að koma deildinni aftur heim til Grindavíkur Vísir/Stefán

„Við erum Grind­víkingar og eigum að spila heima,“ segir for­maður knatt­spyrnu­deildar Grinda­víkur sem hefur tekið fyrsta skrefið í átt að heim­komu í ár. Félagið hefur skráð Stakka­víkur­völl í Grinda­vík sem heima­völl sinn fyrir komandi tíma­bil.

Lið Grinda­víkur léku heima­leiki sína á síðasta tíma­bili í Safa­mýrinni í Reykja­vík. Grinda­vík og Njarðvík tefla fram sam­eigin­legu liði í Lengju­deild kvenna á komandi tíma­bili og munu leika heima­leiki sína í Njarðvík en glöggir hafa tekið eftir því á KSÍ að heima­leikir karla­liðsins eru skráðir á Stakka­víkur­völl í Grinda­vík.

Haukur Guðberg Einars­son er for­maður knatt­spyrnu­deildar Grinda­víkur sem hefur, ásamt bæjar­yfir­völdum í Grinda­vík, komið því áleiðis til KSÍ að Stakka­víkur­völlur verði heima­völlur karla­liðsins.

„Við erum búnir að vera í góðu sam­bandi við bæjar­stjórnina og UMFG sem er yfir knatt­spyrnu­deildinni. Það eru bara allir sammála um að gera allt sem í sínu valdi stendur til þessa að koma okkur aftur heim, láta boltann rúlla á Stakka­víkur­velli.

Við erum Grind­víkingar. Eigum að spila heima. Eins og ég hef sagt oft áður var ábyrgð mín að koma liðinu í var, nú er ábyrgð mín að koma liðinu heim.“ 

Veltur mikið á móðir náttúru

Og þið trúið því fullum fetum að það verði raunin, að liðið geti spilað í Grinda­vík á komandi tíma­bili?

„Já allan daginn. Það fer náttúru­lega eftir móðir náttúru. Við erum enn í at­burði, vitum ekki hvað gerist næst en við höfum sloppið vel hingað til. Völlurinn er heill, stúkan heil. Völlurinn er iða grænn þessa stundina. Hann bíður eftir því að við komumst heim.“

Nú þurfa Grind­víkingar annars vegar að fá grænt ljós frá KSÍ varðandi leik­hæfi vallarins. Staðan á vellinum er góð að sögn Hauks.

„Ég er búinn að skoða þetta vel. Gula húsið, búnings­her­bergin, þetta er allt í topp­málum. Getur ekki verið betra. Ég sé enga fyrir­stöðu. Það er allt í topp­málum þarna í kring.“

Lið Grindavíkur í körfubolta hafa spilað heimaleiki sína í Smáranum í KópavogiVísir

Hvað þarf að gerast svo þið getið spilað heima? 

„Nú­mer eitt þarf guð að vera góður við okkur. Náttúran. Nú­mer tvö, og ég beini því hér með, þurfum við fullt af sjálf­boðaliðum heim til þess að hjálpa okkur. Þetta verður bara ævintýri, karla­liðið okkar er að spila á frekar ungum leik­mönnum í sumar og það hefur margt breyst síðan árið 2023.“

Eru í treyju Grindavíkur og spila þá í Grindavík

Er búið að bera þetta undir leik­menn og þjálfara liðsins, og ef svo er hvernig bregðast þeir við þessu?

„Já það er búið að bera þetta undir þjálfarana og leik­menn vita af þessu. Menn tala saman. Þeir eru í Grinda­víkur treyjunni, þá verða þeir bara að spila í Grinda­vík.“

En nú mætti ætla að leik­menn, þjálfarar og stuðnings­menn annarra liða veigri sér við að spila í Grinda­vík sökum jarðhræringanna þar.

„Það er búið að búa til smá hræðslu í fréttunum varðandi Grinda­vík. Það eru hol­rými í Hafnarfirði, hol­rými í Garða­bæ. Sprungur hér og þar. Ekkert bara í Grinda­vík. En það er verið að spila fót­bolta þar. Af hverju ekki í Grinda­vík?“

Ekki alveg búinn að átta sig á þessu

Er full­kom­lega hættu­laust að spila þar?

„Já, það er það. Ég er ekkert að segja að fólk eigi að flytja með fjöl­skyldurnar sínar heim. Það á eftir að laga bæinn aðeins til, það tekur ein­hvern smá tíma. Ég fer til Grinda­víkur þrisvar til fjórum sinnum í viku út af minni vinnu. Það er bara allt í topp­lagi. Það eru fleiri hundruð manns að vinna þarna, borða saman á sjómanna­stofunni og Papas, bara stemmari þarna.“

En hvernig hefur verið fyrir þig og ykkur í knatt­spyrnu­deild Grinda­víkur að halda starfinu áfram í þessum aðstæðum. Það hlýtur að vera ansi breytt um­hverfi?

„Ég held að maður verði að láta tímann aðeins líða. Maður er að kyngja þessu sjálfur núna og ekki alveg búinn að átta sig á þessu. Þetta er búið að vera mikill rússíbani hjá okkur í stjórn og ráðum. Maður á eftir að fara yfir þetta kannski seinna.“

Í upphaflegu fréttinni hér fyrir neðan sem flutt var í Sportpakkanum þann 11.febrúar síðastliðinn var því haldið fram að Almannavarnir þyrftu að gefa leyfi fyrir því að spilað yrði á Stakkavíkurvelli. Það er ekki rétt og er slíkt leyfi þeim ekki viðkomandi og fréttin því hér með leiðrétt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×