Viðskipti innlent

Nýir for­stöðu­menn hjá Motus

Atli Ísleifsson skrifar
Tryggvi Jónsson og Rúnar Skúli Magnússon.
Tryggvi Jónsson og Rúnar Skúli Magnússon.

Motus hefur ráðið Tryggva Jónsson sem forstöðumann gagnalausna og Rúnar Skúla Magnússon sem forstöðumann vöruþróunar, en báðir hafa þegar þegar hafið störf hjá fyrirtækinu.

Í tilkynningu segir að Tryggvi sé doktor í tölfræði frá Danmarks Tekniske Universitet með reynslu af hagnýtingu gagna, þróun gagnakerfa og hugbúnaðarþróun, bæði hjá stórum félögum og úr nýsköpun. 

„Áður en hann hóf störf hjá Motus starfaði hann á sjötta ár hjá Marel, en þar áður starfaði hann hjá Arion banka, Meniga og sinnti kennslu í Háskólanum í Reykjavík.

Rúnar er stærðfræðingur með mastersgráðu í stjórnun og stefnumótun frá Universitat Pompeu Fabra í Barcelona. Hann er með mikla reynslu af vörustýringu, nýsköpun og stjórnun og starfaði m.a. hjá Símanum og Marel áður en hann gekk til liðs við Motus. Hjá Marel leiddi hann vöruþróunarsvið hér á Íslandi, Danmörku og í Bretlandi sem unnu á breiðum grunni tækni við þróun búnaðar,“ segir í tilkynningunni. 

Motus er leiðandi fyrirtæki á sviði kröfuþjónustu og innheimtu fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyrissjóði og opinbera aðila. Hjá Motus starfar fjölbreyttur hópur um 100 sérfræðinga á fjölmörgum sviðum um land allt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×