Körfubolti

KFG sektað um 30 þúsund vegna kynþáttaníðs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik KFG og Breiðabliks.
Úr leik KFG og Breiðabliks. Skjáskot/veo

Um miðjan janúar var kæra send inn á borð Körfuknattleikssambands Íslands eftir að dómari í leik KFG og Breiðabliks, í leik í 1. deild karla í Garðabæ, var beittur kynþáttaníði. KFG hefur nú verið sektað um 30 þúsund krónur vegna athæfisins.

Það var mbl.is sem greindi fyrst frá. Í myndbandinu má heyra kallað úr stúkunni „Ertu of skáeygður til að sjá þetta.“ Ekki sést þó á myndbandinu hver kallar inn á völlinn.

Nú hefur Aga- og úrskurðarnefnd komist að niðurstöðu í málinu. Í dómi sambandsins segir:

„Með vísan til ákvæðis h. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hið kærða félag, KFG, gert að greiða sekt að fjárhæð 30.000 kr. vegna háttsemi áhorfenda í leik KFG og Breiðabliks, 1. deild karla, sem fram fór þann 11. janúar 2025.“

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér að neðan.

Haldið er reglulegt dómþing aga- og úrskurðarnefndar Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) fimmtudaginn 23. janúar 2025.

Fyrir er tekið: agamál nr. 37/2024-2025

Körfuknattleikssamband Íslands gegn KFG

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

ÚRSKURÐUR

I.

Mál þetta var upphaflega móttekið af hálfu aga- og úrskurðarnefndar þann 13. janúar 2025. Kærandi er körfuknattleikssamband Íslands, kt. 710169-1369, Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Kærð er háttsemi áhorfanda í leik KFG og Breiðabliks sem fram fór í Garðabæ, á heimavelli KFG, þann 11. janúar 2025.

II.

Atvik máls

Hinn 13. janúar 2025 barst aga- og úrskurðanefnd eftirfarandi lýsing úr atvikaskýrslu dómara:

Í öðrum leikhluta þegar eru um 20 sec er ólöglegt hindrun sett upp sem dómarar leiksins missa af. Ósáttur áhorfandi lætur þá heyra í sér ókvæðisorð. Ég heyri þetta en ekki nógu skýrt til þess að vera viss. Ég skoða myndbandsupptöku eftir leik og þá stenst það sem ég heyrði sem var eftirfarandi:

- [óskýrt] fávitinn þinn. (þetta óskýra orð virðist vera "Asíski").

- Lemur í hann þarna maður.

- Þú ert kannski of skáeygður til að sjá þetta.

Það sést ekki hver segir þetta á myndbandinu en á meðan á leik stóð kom ýmislegt frá einum tilteknum áhorfanda, sem ég veit hver er, og sá er stuðningsmaður heimaliðsins KFG og ég er viss um þetta hafi komið frá honum.

Mér skilst það hafi einnig verið vitni að þessu í stúkunni og það má hugsanlega leita til þeirra til að fá staðfest hver það var sem kallaði.

Við móttöku atvikaskýrslunnar frá skrifstofu KKÍ bað formaður aga- og úrskurðarnefndar um staðfestingu um hvort einhver dómara leiksins væru af erlendum uppruna, og fékk staðfestingu á að annar dómara leiks eigi ættir að rekja til Suðaustur-Asíu. Þá var myndbandsupptaka af atvikinu jafnframt lögð fyrir nefndina.

III.

Greinargerð kærða

Greinargerð KFG, sem barst hinn 17. janúar 2025, er svohljóðandi:

Inngangur

Mánudaginn 13. janúar sl. barst forsvarsmönnum KFG atvikaskýrslu dómara úr leik KFG og Breiðabliks sem fram fór laugardaginn 11. janúar. Atvikaskýrslan verður ekki rengd. Aðdragandi þeirra ummæla sem féllu skiptir engu máli, enda verður að gera þá sjálfsögðu kröfu á stuðningsmenn íþróttaliða að sýna háttvísi í sinni framkomu. Það skal engum vafa undirorpið að KFG fordæmir þessa orðræðu.

Körfuknattleiksdeild KFG vill koma eftirfarandi á framfæri vegna þessa.

Umrædd ummæli komu frá stuðningsmanni KFG. Viðkomandi aðili er ekki í forsvari fyrir félagið og var ekki starfsmaður leiksins.

Ummælin eru litin alvarlegum augum innan félagsins, enda í andstöðu við það sem félagið stendur fyrir. Körfuknattleiksdeild KFG var stofnuð til að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri á að þroskast og reyna sig í krefjandi keppni, taka skrefið fram á við og ná íþróttalegum markmiðum sínum. Við sem förum fyrir félaginu gerum miklar kröfur til okkar leikmanna, þjálfara og þeirra sem að félaginu koma.

Samantekt

Í samskiptum við starfsmann aga- og úrskurðarnefndar fékkst það staðfest að horft væri til h) eða m) liðar 13. gr. reglugerðar um aga og úrskurðarnefnd.

Undirritaðir mótmæla því að m) liður geti átt við hér, þar sem ekki er um að ræða forsvarsmann félagsins eða starfsmann leiks. Umrædd ummæli féllu frá stuðningsmanni félagsins og því eðlilegt að horfa til h) liðar umræddrar greinar.

KFG mun í framhaldi þessa máls efla öryggisgæslu umtalsvert og tryggja eftir fremsta megni öryggi þátttakenda leiks. Það skal þó tekið fram að ekkert viðbragð hefði dugað sérstaklega í þessu máli, annað en eðlileg aðgæsla viðkomandi áhorfanda gagnvart samborgurum sínum og samkennd.

Kröfur KFG

KFG tekur niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar möglunarlaust, en gerir kröfu á að félaginu verði gerð áminning í ljósi þess að þetta er fyrsta brot félagsins. Til vara er farið fram á hóflega sekt í samræmi við sambærileg mál og h) lið 13. gr.

IV.

Niðurstaða

Atvik málsins eru óumdeild og jafnframt óumdeilt að háttsemi viðkomandi áhorfanda varði við h. lið 1. mgr. 13. gr. reglugerðar KKÍ um aga- og úrskurðarmál. Í ljósi uppruna dómara leiks eru umrædd ummæli áhorfandans tvímælalaust lituð af kynþáttafordómum og þar með vítaverð framkoma gagnvart dómurum leiksins.

Til álita kemur þá hver hæfileg refsing sé gagnvart heimaliði leiksins. Fallst verður á það með kæranda að heimalið geti lítið sem ekkert gert til að útiloka að áhorfandi leiks geti látið ummæli af þessu tagi falla. Þá er til þess að líta að félagið brást við hinu kærða atviki með því að senda yfirlýsingu til fjölmiðla skömmu eftir leik þar sem framkoma áhorfandans var fordæmd og dómari leiksins beðinn afsökunar.

Hins vegar er til þess að líta að samkvæmt gögnum málsins hefur viðkomandi áhorfandi fengið að sitja óáreittur á áhorfendapöllum á leikstað. Gera verði þá kröfu til gæslu á leikstað að áhorfendum sem gerast uppvísir af háttsemi sem felur tvímælalaust í sér kynþáttaníð verði tafarlaust vísað af leikstað. Væru það eðlileg viðbrögð gagnvart viðkomandi áhorfenda og auk þess mikilvæg forvarnaraðgerð fyrir körfuknattleikshreyfinguna í heild. Á þessum grundvelli þykir því rétt að ákvarða hinu kærða félagi sekt líkt og kveður á um í úrskurðarorði.

ÚRSKURÐARORÐ

Með vísan til ákvæðis h. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hið kærða félag, KFG, gert að greiða sekt að fjárhæð 30.000 kr. vegna háttsemi áhorfenda í leik KFG og Breiðabliks, 1. deild karla, sem fram fór þann 11. janúar 2025.

Jónas Már Torfason, formaður

Elvar Guðmundsson, varaformaður

Björn Atli Davíðsson

Úrskurðurinn er sendur skrifstofu KKÍ í tölvupósti og henni falið að birta hann fyrir málsaðilum. Úrskurðinn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 11. gr. reglugerðar KKÍ um aga- og úrskurðamál.

Með vísan í 5. mgr. 9. gr. reglugerðar KKÍ um aga- og úrskurðarmál tekur þessi úrskurður gildi kl. 12.00, föstutudaginn 24. janúar 2025


Tengdar fréttir

Kært vegna rasisma í Garðabæ

Kæra liggur inni á borði Körfuknattleikssambands Íslands eftir að dómari í leik KFG og Breiðabliks, í leik í 1. deild karla í Garðabæ, var beittur kynþáttaníði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×