Verður forsætisráðherra Írlands á ný Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2025 11:44 Micheal Martin gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 2020 til 2022. EPA Írska þingið kemur saman til fundar á ný í dag þar sem skipaður verður nýr forsætisráðherra eftir þingkosningarnar sem fram fóru í lok nóvember. Micheál Martin, leiðtogi Fianna Fáil, mun þar taka við embætti forsætisráðherra af Simon Harris, leiðtoga Fine Gael, sem mun taka við embætti aðstoðarforsætisráðherra.
Í kosningunum náði Fianna Fáil flestum mönnum inn á þing, eða 48 talsins, og hefur nú myndað stjórn með Fine Gael ásamt nokkrum óháðum þingmönnum. Í frétt BBC segir að Sinn Féin verði áfram stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn eftir að hafa tryggt sér 39 þingsæti. Fine Gael náði inn 38 þingmönnum. Martin, sem gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 2020 til 2022, og Harris tilkynntu fyrr í janúar að samkomulag hefði náðst um stjórnarmyndun og stjórnarsáttmála sem báðir flokkarnir hefðu samþykkt. Fianna Fáil og Fine Gael höfðu báðir útilokað stjórnarsamstarf með Sinn Féin sem Mary Lou McDonald, leiðtogi flokksins, lýsti sem „slæmum starfsháttum“. Nokkrar deilur hafa staðið í aðdraganda þingsetningarinnar eftir að einhverjir þeirra óháðu þingmanna sem styðja nýja stjórn óskuðu eftir því að sitja stjórnarandstöðumegin í þingsalnum og tala þaðan.
Írland Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Enski boltinn Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira