Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Lovísa Arnardóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 22. janúar 2025 10:20 Diljá Mist setur hið óraunhæfa kosningaloforð um bann við íþróttamótum barna í samhengi við loforð Flokks fólksins, sem nú situr í ríkisstjórn. Vísir/Vilhelm Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill banna íþróttamót fyrir klukkan tíu um helgar. Það segir hún geta verið kosningaloforð sem auðvelt verði að svíkja, og sendir Flokki fólksins væna pillu um leið. „
Um þessar mundir er nefnilega gerð samfélagsleg krafa um mætingu a.m.k. tveggja ættliða og helst allra systkina til að hvetja börnin áfram allt frá því þau eru nánast ómálga en geta þó þóst sparka í bolta. Einhverjir sjá e.t.v. fyrir sér heilbrigðar samverustundir fjölskyldunnar, en í alltof mörgum tilfellum eru þetta alltof æstir ættingjar að hvetja börnin sín áfram milli þess sem liðið gúffar í sig sérlega óhollum veitingum,“ segir Diljá í aðsendri grein á Vísi í dag. Fyrsta loforðið sem hún myndi svíkja Hún segist hafa rætt það opinskátt að þetta ætti að vera kosningamál og er viss um þverpólitískan stuðning. Diljá segir þetta „kosningamál“ þó þess efnis að það sé ansi langsótt að fá íþróttamót bönnuð fyrir klukkan 10 með lögum. Því væri auðséð að myndi hún lofa þessu í kosningabaráttu yrði þetta með fyrstu loforðum sem hún myndi svíkja. Diljá segir einmitt það sama hafa gerst með mörg loforða Flokks fólksins í aðdraganda kosninga. „Það var athyglisvert fyrir fólk með jarðtengingu og heilbrigða skynsemi að fylgjast með kosningabaráttu Flokks fólksins, flokksins hennar Ingu Sæland. Helsta kosningaloforð flokksins var að skattleysismörk yrðu hækkuð í 450.000 kr. á mánuði. Þá yrði öryrkjum og eldri borgurum tryggðar 450.000 kr. á mánuði í ráðstöfunartekjur skatta- og skerðingarlaust. Þessi loforð hafa dunið á kjósendum og forsvarsmenn flokksins hafa lagt mesta áherslu á þessi mál. Á heimasíðu flokksins eru þetta efstu tvö málin yfir svokölluð forgangsmál Flokks fólksins. Það er víst að fjölmargir kjósendur hafi greitt flokknum sitt atkvæði á grundvelli loforðanna,“ segir Diljá í grein sinni. Svikin skjalfest í sáttmálanum Það hafi svo aðeins tekið Ingu Sæland og flokkinn nokkra daga að svíkja þessi loforð „kinnroðalaust eftir kosningar.“ „Hún byrjaði í raun að gefa eftir strax að þeim loknum og svikin voru síðan skjalfest með ríkisstjórnarsáttmálanum. Ég er ekki viss um að kjósendur muni gleyma þessu svo glatt. Mögulega mun þess gæta strax í næstu sveitarstjórnarkosningum,“ segir Diljá en sveitarstjórnarkosningar fara fram vorið 2026. Diljá víkur svo aftur að íþróttamótunum. „Ég skynja ríkan vilja fjölmargra foreldra til þess að koma í veg fyrir kappleiki og sýningar barna á ókristilegum tímum um helgar. Bann við slíku með lögum er þó langsótt. Loforð um slíkt myndi þó eflaust vekja mikla athygli og trekkja að. Ég er ekki viss um að frambjóðendur Flokks fólksins séu mjög bundnir við þessa iðju um helgar. Annars hefði þeim e.t.v. komið þetta til hugar því ekki vefst það fyrir þeim að þurfa ekki að efna gefin loforð.“ Bandamenn í fjölda foreldra Í samtali við Vísi segist Diljá nýbúin að klára þriggja daga fótboltamót með einu barna sinna. „Svo dettur þessi tenging upp í fangið á mér þegar það kemur í ljós að Flokkur fólksins stenst ekki skilyrði skattsins til þess að fá úthlutað fjármunum skattgreiðenda sem stjórnmálasamtök. Það var nú tengingin,“ segir Diljá. Hún hafi viljað vekja athygli á málinu með þessum hætti, en segist þó staðföst á þeirri skoðun að ekki eigi að rífa börn á fætur fyrir allar aldir til þess að fara að spila fótbólta eða iðka aðrar íþróttir í skammdeginu. „Ég þykist vita að ég eigi bandamenn í fjölmörgum foreldrum, ég gat ekki séð betur klukkan átta síðastliðinn laugardagsmorgun,“ segir Diljá. Í raun sé um að ræða hagsmunamáls alls samfélagsins, barna og foreldra. „Ef það er einhvers staðar sem við eigum ekki að vera að rífa börnin okkar á fætur um helgar til þess að arka af stað á íþróttamót, þá er það í skammdeginu hér á Íslandi.“ B-börnin ekki ánægð Þrátt fyrir að hafa ímugust á íþróttamótum sem hefjast fyrir allar aldir um helgar segist Diljá að sjálfsögðu vilja að börn hennar stundi íþróttir. „En getur þetta ekki verið á kristilegum tíma? Getum við ekki tekið höndum saman um það sem samfélag?“ spyr Diljá. Skiljanlegt sé að íþróttamótin séu mörg, enda fjáröflunarleiðir fyrir félagið sem heldur mótið hverju sinni. „En það er bara ótrúlega mikilvægt fyrir börn og foreldra að þurfa ekki alltaf að vera að rífa sig upp fyrir allar aldri. Það vekur að minsta kosti ekki lukku hjá mínum B-börnum.“ Illframkvæmanlegt loforð sem auðvelt er að svíkja Líkt og áður sagði nefnir Diljá í greinninni gæti loforð um að banna mót sem hefjast svo snemma í morgunsárið höfðað vel til kjósenda, en það yrði það fyrsta sem hún myndi svíkja. Hún segir ljóst að loforðið sé illframkvæmanlegt, en nefnir í háði að þrátt fyrir það kynni hún að taka það upp sem prófkjörsloforð þegar líða tekur að næstu þingkosningum. „Ég var aðallega að velta því upp fyrir kjósendur Flokks fólksins til þess að hugsa um. Það leið svo svakalega skammur tími frá því kosningunum lauk, þar sem auglýsingar og helstu kosningamál flokksins dundu á manni, og þar til þau voru búin að svíkja þau öll. Þannig að það var nú þess vegna sem ég velti þessu upp.“ Formaður flokksins hafi marglýst því yfir að skatta- og skerðingarlausar bætur upp á 450 þúsund krónur væri ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir þátttöku flokksins í stjórnarmyndunarviðræðum. „Þetta er meðal þess sem við erum spennt að ræða við nýja stjórn,“ segir Diljá. Vill komast í vinnuna Ljóst er að hugur er í Diljá, sem nú situr í stjórnarandstöðu. Hún segist þó ekki aðeins vera í því að gagnrýna stjórnina. „Ég er nú líka búin að vera að leggja þeim lið með því að senda inn hagræðingartillögur og skrifa um þær. Ég er bara orðin svo óþreyjufull að hefja störf, komast í vinnuna. Eitt meginhlutverk Alþingis er að veita stjórnvöldum aðhald og það er bagalegt að það skuli starfa hér ríkisstjórn í svo langan tíma í friði fyrir mikilvægu aðhaldi frá stjórnarandstöðunni,“ segir Diljá. Heyra má á henni að þegar þing kemur saman 4. febrúar muni hún beina sjónum sínum að Flokki fólksins. Hún segir alvarlegt að flokkurinn hafi þegið fjármuni úr opinberum sjóðum án þess að uppfylla til þess skilyrði laga. „Auðvitað er spurning líka um fordæmið sem verið er að setja. Inga þekkir þetta vel, hún var flutningsmaður frumvarps sem bætti meðal annars við þessu skilyrði um skráningu stjórnmálasamtaka. Þessi skilyrði sem eru sett í lögunum eru til þess að stuðla að gagnsæi og eru ekki bara upp á punt, og auðvitað mikilvægt að farið sé eftir þeim.“
Sjálfstæðisflokkurinn Íþróttir barna Flokkur fólksins Börn og uppeldi Mest lesið Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Innlent Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Erlent Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka Erlent Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“ Erlent Einn af hverjum 264 sem tóku ADHD lyf fór í fyrsta geðrofið innan árs Innlent Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Erlent Heitar umræður um lokun flugbrautar Innlent „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Innlent Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Erlent Fleiri fréttir Kæra lögð fram vegna grænu skemmunnar Einn af hverjum 264 sem tóku ADHD lyf fór í fyrsta geðrofið innan árs Agaleysi í skólum og geðrof tengt ADHD lyfjum Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Heitar umræður um lokun flugbrautar Eldur kviknaði í pappagámi í Skeifunni Prammi á ferðinni á Ölfusá vegna nýrrar brúar Sýklalyfjaónæmi raunveruleg ógn Kristrún væntir áframhaldandi náinna samskipta við Bandaríkin 155 milljónir til sviðslistaverkefna Dagur kveður eftir 23 ár í borginni Rýnt í fyrsta dag Trumps í embætti og deilt um Reykjavíkurflugvöll Sjúkraflug mikilvægara en „að rífast um einhver tré“ Einhver heimili enn keyrð á varaafli Hefur ekki fengið verkefni í mánuð Sjá auknar líkur á eldgosi í kortunum Öllum rýmingum aflétt Sagði skilaboð þar sem hann sagðist fullur eftirsjár fölsuð Þúsund skref aukalega skila 15 prósent lægri dánartíðni Undirbúa móttöku þeirra sem verða sendir frá Bandaríkjunum Ætla að breytast í stjórnmálaflokk á fyrsta landsfundinum í sex ár Rýmingum aflétt í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði Búast við afléttingu fyrir austan í hádeginu Kaldasta árið á landinu í rúman aldarfjórðung Kallar eftir þjóðarátaki: Skólastjóri segir agaleysi innan skólanna óboðlegt Maðurinn sem ók á Ibrahim: „Skelfilegt að enda ferilinn svona“ Bein útsending: Veður og veitur – áskoranir fráveitna vegna loftslagsbreytinga Sjá meira
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent