Lífið

Setja börnin í for­gang og slíta hjóna­bandinu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hjónin hafa ákveðið að skilja eftir tíu ára hjónaband.
Hjónin hafa ákveðið að skilja eftir tíu ára hjónaband. Getty

Bandaríska leik-og söngkonan Jessica Simpson og eiginmaður hennar, Eric Johnson fyrr­ver­andi NFL-leikmaður, eru að skilja eftir tíu ára hjónaband. Hún segir að ákvörðunin hafi verið tekin með hagsmuni barna þeirra í huga.

Frá þessu greindi Simp­son í samtali við tíma­ritið bandaríska tímaritið People.

„Við Eric erum búin að vera í sundur í nokkurn tíma eftir erfiðar áskoranir í hjónabandi okkar,“ sagði Simpson í yfirlýsingu. „Börnin okkar eru í fyrsta sæti og ætlum við að einbeita okkur að því sem er þeim fyrir bestu. Við erum afar þakklát fyrir allan þann kærleika og stuðning sem við fundið fyrir. Okkur þætti vænt um að fá næði til að vinna okkur í gegnum þetta sem fjölskylda.“

Simpson og Johnson kynntust árið 2010 í gegnum sameiginlega vini. Sex mánuðum síðar trúlofuðu þau sig og gengu í hjónaband í júlí 2014. Þau eiga saman þrjú börn, tvær dætur og einn son, á aldrinum fimm til tólf ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.