Innlent

Ný leið fyrir ferða­menn með átta eld­fjöllum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eldfjallaleiðin hefur fengið mjög góðar viðtökur og viðbrögðum hjá forsvarsmönnum ferðaþjónustunnar enda um spennandi og skemmtilega ferðaleið að ræða.
Eldfjallaleiðin hefur fengið mjög góðar viðtökur og viðbrögðum hjá forsvarsmönnum ferðaþjónustunnar enda um spennandi og skemmtilega ferðaleið að ræða. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Forsvarsmenn ferðaþjónustunnar á Reykjanesi og á Suðurlandi eru nú að kynna nýja og spennandi leið fyrir ferðamenn, sem nær frá Fagradalsfjalli á Reykjanesi að Öræfajökli í sunnanverðum Vatnajökli. Leiðin er um 700 kílómetra.

Nýja ferðaleiðin, sem kallast „Eldfjallaleið” er leið, sem Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjanes hafa verið að vinna að og var kynnt fyrir fulltrúum ferðaþjónustunnar nýlega í Hellisheiðarvirkjun. Hugmyndin gengur út á að endurskilgreina suðurströndina alveg frá Fagradalsfjalli að Öræfajökli þegar ferðaþjónusta er annars vegar.

„Og þar á leiðinni eru átta eldvirkni stöðvar eða eldfjöll, sem eru skilgreind, sem svæði og fókuspunktar og einn af þeim er til dæmis Hengilinn. Þetta er ekki hraðleið heldur er þetta hugsað til að þú ferðist hægt og þú nýtir forvitnis hugsunina og horfir svolítið vel í kringum þig þannig að það er verið að reyna að hvetja fólk til að hægja á sér, nýta nærumhverfið, horfa betur í kringum sig og taka lengri tíma að ferðast að Reykjanesinu alveg að höfn,” segir Laufey Guðmundsdóttir, sýningarstjóri jarðhitasýningarinnar í Hellisheiðarvirkjun.

Laufey Guðmundsdóttir, sem er sýningarstjóri jarðhitasýningarinnar í Hellisheiðarvirkjun en hún hefur komið nálægt vinnunni við nýju leiðina.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Laufey segist skynja mikinn áhuga fyrir nýju leiðinni og hún er sannfærð um að hún eigi eftir að slá í gegnum hjá ferðamönnum.

„Alveg, sannarlega og það er mikill áhugi hjá erlendum ferðaþjónustuaðilum og svo líka hjá íslenskum, sem eru að vakna og koma á vagninn.”

„Eldfjallaleið”, er þetta hættuleg leið, þarf maður að vera skíthræddur?

„Alls ekki, þetta er bara fræðandi og skemmtilegt,” segir Laufey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×