Atli Steinn genginn í það heilaga Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. janúar 2025 21:21 Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins, og eiginkona hans, Aníta Sjøstrøm Libell Andersen. Mynd/Atli Steinn Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins, gekk í það heilaga í gær, gamlársdag, við suðurbarm Miklagljúfurs í Bandaríkjunum og er nú giftur hinni norsku Anítu Sjøstrøm Libell Andersen.
Þessu greinir Atli Steinn frá á Facebook-síðu sinni en þar segir að kærasta þeirra hjóna hafi gefið þau saman við látlausa athöfn með stórkostlegt útsýni. „Við Anita Sjøstrøm létum í morgun pússa okkur saman á suðurbarmi Miklagljúfurs, Grand Canyon, við fagra en látlausa athöfn dómarans og kærustu okkar, Robin Burgess, sem í krafti embættis síns er stætt á að framkvæma hjónavígslur í Arizona-ríki (og raunar öllum ríkjum Bandaríkjanna veiti til þess bær dómari í viðkomandi ríki heimild sína, man þetta ekki í smáatriðum,“ segir í færslu Atla. Þjónninn reyndist öflugur ljósmyndari Atli, Aníta og Robin óku þrjú saman frá Phoenix í Arizona-ríki þann 30. desember og gistu þau í huggulegum kofa í grennd við Miklagljúfur degi fyrir Brúðkaupið þar sem gestirnir voru aðeins þrír talsins. „Hún Yvonne Marie Fortune blessunin, sem er lifandi eftirmynd Zeldu heitinnar Rubinstein sem túlkaði miðilinn Tanginu Barrons eftirminnilega í kvikmyndunum Poltergeist I – III árin 1982 til 1988, og dóttir hennar Calysta, leiftrandi greind stúlka sem nú stefnir á hagfræðinám í virtum háskóla í Chicago og tjáði mér þetta allt saman í löngu máli. Þriðji maður, og þrælöflugur ljósmyndari kom svo í ljós, var Kristopher Soberano, þjónn á veitingastað sem við snæddum kvöldverð á í gær og buðum að sjálfsögðu í brúðkaupið. Við erum jú félagslynd með afbrigðum.“ Koss á kinn frá eiginkonu og kærustu. „Þær mæðgur gegna þungavigtarhlutverki í sambandi okkar Robin þar sem ég rakst á þær Yvonne í Bankastrætinu laugardaginn 4. nóvember 2023 í Íslandsheimsókn. Ræddi þá gagn og nauðsynjar jóla við dótturina á símaskjá og átti slíkt skjásamtal sér aftur stað nú á aðfangadag áður en við hittumst fyrsta sinni skjálaust – og gleðin eftir því – í teiti hjá Robin á sunnudag sem fól meðal annars í sér skotvopnaprófun okkar Anitu hjá nágrannanum.“ Fögnuðu á tónleikum Lil Wayne um kvöldið Atli segir í færslu sinni að athöfnin hafi verið einstaklega fögur sem sé lukkulegt enda ekki á vísan að róa með veður um miðjan vetur á þessum fagra stað sem er að meðaltali 2.134 metra hæð yfir sjávarmáli. Skafheiður himinn hafi þó blasið við þeim um morguninn. „Robin flutti stutta en fagra tölu og fór yfir öll formlegheit og sem dómaraembætti hennar býður lauk hún máli sínu, fyrir kossinn fræga (okkar Anitu sem sagt), á hinum annáluðu orðum: „By the power invested in me by the Universal Life Church and The State of Arizona it is my pleasure to announce you wife and husband.“ Þannig var nú það. Frábær og ógleymanleg athöfn og fjöldi ferðamanna á göngunni til baka í litla kofann okkar óskaði okkur innilega til hamingju sem var huggulegt og skemmtileg upplifun að auki.“ Að lokinni athöfn héldu þau saman til Las Vegas þar sem þau sóttu tónleika hjá engum öðrum en Lil Wayne á gamlárskvöld. „Ekki það að ég kunni nú sérstaklega við þessa blessuðu rapptónlist en jæja, kærastan okkur býður okkur á tónleika og auðvitað mætir maður.“ Sjá má færslu Atla í heild sinni hér fyrir neðan:
Brúðkaup Ástin og lífið Íslendingar erlendis Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Fleiri fréttir Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Sjá meira