Íslenski boltinn

„Ég trúi því að frá­bært geti alltaf orðið enn­þá betra“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason fagnar hér einu af fjölmörgum mörkum sínum á atvinnumannaferlinum að þessu sinni marki fyrir þýska félagið FC Augsburg.
Alfreð Finnbogason fagnar hér einu af fjölmörgum mörkum sínum á atvinnumannaferlinum að þessu sinni marki fyrir þýska félagið FC Augsburg. Getty/TF-Images

Alfreð Finnbogason gengur sáttur frá borði eftir farsælan knattspyrnuferil. Hann er ekki á heimleið strax, í það minnsta, en mun þó starfa fyrir uppeldisfélagið Breiðablik.

Alfreð hefur verið á meðal fremri atvinnumanna Íslands og hefur farið víða. Svíþjóð, Danmörk, Holland, Spánn, Grikkland og Belgía á meðal áfangastaða. Hann hafði verið án liðs um hríð þegar hann lagði skóna á hilluna fyrir um mánuði síðan en slík ákvörðun er aldrei léttvæg.

Erfiðasta ákvörðunin

„Fyrir íþróttamenn er þetta líklega erfiðasta ákvörðun sem maður tekur nokkurn tímann og hún er ekki tekin oft. Að ákveða að hætta því sem maður hefur stefnt að alla ævi sem er að vera atvinnumaður í fótbolta,“ sagði Alfreð í viðtali við Val Pál Eiríksson.

„Á sama tíma horfi ég mjög björtum augum á framtíðina og er bara spenntur fyrir því sem koma skal. Það eru algjör forréttindi að fá að hafa verið knattspyrnumaður svona lengi. Margir þurfa að hætta vegna meiðsla eða annarra ástæðna,“ sagði Alfreð.

„Ég tók þessa ákvörðun sjálfur af því að ég tel það vera best fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég geng því mjög sáttur frá borði,“ sagði Alfreð.

Ekki á heimaleið

Alfreð er sérstakur tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Breiðabliks en er þó ekki á heimleið, ekki strax í það minnsta.

„Eftir að ég hætti þá hef ég meiri lausan tíma til að koma til Íslands og taka þátt í nýrri stefnu sem Breiðablik vill fara með nýju starfsfólki. Það er unnið frábært starf þar,“ sagði Alfreð.

Mjög spennandi

„Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið enn þá betra. Við erum að reyna að stuðla að því að setja upp ákveðna stefnu og byggja ofan á þennan frábæra árangur sem var á þessu ári. Að vera allavega í fremstu röð í meistaraflokkum og taka þá stefnu niður í yngri flokkana. Það er mjög spennandi að vera hluti af því,“ sagði Alfreð.

Er hann síðan að koma heim eða hver eru næstu skrefin hjá honum með það?

„Það er ekkert ákveðið með það. Ég reikna með því að við fjölskyldan munum búa erlendis allavega fram á næsta sumar. Svo munum við bara skoða stöðuna. Það er í rauninni ekkert ákveðið í því en krakkarnir mínir eru í skóla hérna erlendis og stefnan er að vera erlendis næstu mánuðina,“ sagði Alfreð.


Tengdar fréttir

„Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“

Alfreð Finnbogason þekkir mjög vel til íslenska fótboltalandsliðsins enda einn markahæsti leikmaður þess frá upphafi. Hann á að baki 73 landsleiki og þrettán ár í landsliðinu og veit því hvaða kostum góður landsliðsþjálfari þarf að búa yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×