Neytendur

Sektuð fyrir að aug­lýsa lénið á aug­lýsinga­skilti

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Pólóborg ehf. var sektað vegna auglýsinga á nikótínvörum.
Pólóborg ehf. var sektað vegna auglýsinga á nikótínvörum. Vísir/Egill Aðalsteinsson

Neytendastofa hefur sektað Pólóborg ehf. um þrjú hundruð þúsund krónur vegna auglýsinga á nikótínvörum. Auglýsingarnar voru bæði birtar á samfélagsmiðlum og auglýsingaskilti. 

Pólóborg ehf. rekur verslanir Póló á höfuðborgarsvæðinu, Bláu sjoppuna og Nýju sjoppuna.

Félagið auglýsti nikótínvörur á síðum sínum á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Samkvæmt lögum má ekki auglýsa nikótínvörur, rafrettur eða áfyllingar á rafrettur.

Þá auglýsti félagið einnig vefverslun sína, rafrettur.is, á auglýsingaskilti á versluninni Póló á Bústaðavegi. Í úrskurði Neytendastofu kemur fram að talsmenn Pólóborgar ehf. segja auglýsingaskiltið ekki brjóta lög þar sem þar sé verið að auglýsa lén vefverslun félagsins.

Þar sem að orðið „rafretta“ stóð á auglýsingaskiltinu taldi Neytendastofa að félagið væri að brjóta lög um auglýsingar á nikótínvörur.

Pólóborg ehf. þarf að greiða þrjú hundruð þúsund króna sekt vegna auglýsinganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×