Liverpool bara með einn sigur í síðustu níu leikjum á móti Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2024 11:42 Ilkay Gündogan fagnar marki sínu fyrir Manchester City í sigri á móti Liverpool. Getty/Michael Regan Liverpool tekur á móti Manchester City í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í dag. Heimamenn í Liverpool geta náð ellefu stiga forskoti á City með sigri. Ekki hefur þó gengið vel hjá Liverpool að vinna Manchester City í ensku úrvalsdeildinni síðustu ár. Í raun hefur Liverpool aðeins einu sinni fagnað sigri í síðustu níu deildarleikjum liðanna. Sá sigur kom á Anfeild í október 2022 og vannst 1-0 með marki Mohamed Salah eftir stoðsendingu frá markverðinum Alisson. Manchester City hefur fagnað þremur sigrum á sama tíma en liðin hafa alls gert fimm jafntefli í þessum níu síðustu leikjum. Liðin gerðu þannig 1-1 jafntefli í báðum deildarleikjum sínum á síðustu leiktíð. Manchester City vann 4-1 sigur á heimavelli tímabilið 2022-23 þrátt fyrir að Salah hafi komið Liverpool yfir. Julián Alvarez, Kevin De Bruyne, Ilkay Gündogan og Jack Grealish skoruðu allir fyrir City. City menn unnu síðast deildarleik á Anfield í febrúar 2021. Ilkay Gündogan skoraði tvívegis í leiknum en hini mörkin skoruðu Raheem Sterling og Phil Foden. Salah skoraði mark Liverpool en hann hefur alls skorað ellefu mörk í öllum keppnum á móti City.
Ekki hefur þó gengið vel hjá Liverpool að vinna Manchester City í ensku úrvalsdeildinni síðustu ár. Í raun hefur Liverpool aðeins einu sinni fagnað sigri í síðustu níu deildarleikjum liðanna. Sá sigur kom á Anfeild í október 2022 og vannst 1-0 með marki Mohamed Salah eftir stoðsendingu frá markverðinum Alisson. Manchester City hefur fagnað þremur sigrum á sama tíma en liðin hafa alls gert fimm jafntefli í þessum níu síðustu leikjum. Liðin gerðu þannig 1-1 jafntefli í báðum deildarleikjum sínum á síðustu leiktíð. Manchester City vann 4-1 sigur á heimavelli tímabilið 2022-23 þrátt fyrir að Salah hafi komið Liverpool yfir. Julián Alvarez, Kevin De Bruyne, Ilkay Gündogan og Jack Grealish skoruðu allir fyrir City. City menn unnu síðast deildarleik á Anfield í febrúar 2021. Ilkay Gündogan skoraði tvívegis í leiknum en hini mörkin skoruðu Raheem Sterling og Phil Foden. Salah skoraði mark Liverpool en hann hefur alls skorað ellefu mörk í öllum keppnum á móti City. Úrslitin í síðustu deildarleikjum Liverpool og Manchester City: 2023-24 Anfield: 1-1 jafntefli Ethiad: 1-1 jafntefli 2022-23 Anfield: Liverpool vann 1-0 Ethiad: Manchester City vann 4-1 2021-22 Anfield: 2-2 jafntefli Ethiad: 2-2 jafntefli 2020-21 Anfield: Manchester City vann 4-1 Ethiad: 1-1 jafntefli 2019-20 Anfield: Liverpool vann 3-1 Ethiad: Manchester City vann 4-0 2018-19 Anfield: 0-0 jafntefli Ethiad: Manchester City vann 2-1 2017-18 Anfield: Liverpool vann 4-3 Ethiad: Manchester City vann 5-0
Úrslitin í síðustu deildarleikjum Liverpool og Manchester City: 2023-24 Anfield: 1-1 jafntefli Ethiad: 1-1 jafntefli 2022-23 Anfield: Liverpool vann 1-0 Ethiad: Manchester City vann 4-1 2021-22 Anfield: 2-2 jafntefli Ethiad: 2-2 jafntefli 2020-21 Anfield: Manchester City vann 4-1 Ethiad: 1-1 jafntefli 2019-20 Anfield: Liverpool vann 3-1 Ethiad: Manchester City vann 4-0 2018-19 Anfield: 0-0 jafntefli Ethiad: Manchester City vann 2-1 2017-18 Anfield: Liverpool vann 4-3 Ethiad: Manchester City vann 5-0
Enski boltinn Mest lesið Sven-Göran skildi eftir sig skuldir upp á einn og hálfan milljarð Fótbolti Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Fótbolti Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Enski boltinn Stoltur og glaður Freyr fékk óumbeðna mynd frá Birki Fótbolti Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Fótbolti Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Enski boltinn Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Enski boltinn Forðað frá gosi um miðja nótt og sáu hraunið flæða yfir húsin á pílumóti Körfubolti Kært vegna rasisma í Garðabæ Körfubolti Önnur U-beygja og Hafsteinn með gegn Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Malen mættur til Villa Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Engin stig tekin af ensku liðunum Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Á morgun opinberar enska úrvalsdeildin hvaða liðum verður refsað Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia Littler hunsaði Beckham óvart Domino's gerði grín að Havertz Mærði hetju United: „Líf þitt getur breyst á einni viku“ Ólétta eiginkonan birti viðbjóðsleg skilaboð „Við fengum ekki það sem við áttum skilið“ „Fann frá fyrstu mínútu að þetta var okkar dagur“ Ekkert mál fyrir Dýrlingana Havertz skúrkurinn þegar United fór áfram Benóný Breki fékk tækifæri gegn Crystal Palace Lömbin þögnuðu ekki fyrr en í framlengingu Fundu ellefu ára gamlan Rashford á götumynd Google Vilja 370 milljarða í skaðabætur vegna dauða eiganda Leicester Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Pep staðfestir að Walker vilji fara í janúar Tæpt hjá Leeds gegn Harrogate úr D-deildinni Upprúllun hjá City gegn litla nágrannaliðinu Frækinn sigur Plymouth en þægilegt hjá Chelsea Sjá meira