Enski boltinn

Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Coote hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu.
David Coote hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. getty/Robbie Jay Barratt

Enn aukast vandræði enska fótboltadómarans Davids Coote. Hann er nú til rannsóknar hjá enska dómarasambandinu, PGMOL, fyrir brot á veðmálareglum.

The Sun greinir frá því Coote gefið leikmanni Leeds United, Ezgjan Alioski, gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik gegn West Brom í október 2019. Eftir leikinn sendi Coote vini sínum skilaboð þar sem hann sagðist vona að hann hefði veðjað á það sem þeir ræddu um.

PGMOL setti Coote í bann fyrr í þessum mánuði eftir að myndband þar sem hann sagði Jürgen Klopp, þáverandi knattspyrnustjóra Liverpool, til syndanna fór í dreifingu. 

Í kjölfarið fór annað myndband í dreifingu þar sem hann sést sjúga hvítt duft upp í nefið á meðan EM í sumar stóð. Þá var greint frá því að Coote hefði skipulagt dóppartí á meðan leik Manchester City og Tottenham í deildabikarnum stóð en hann var fjórði dómari þar.

Coote hefur viðurkennt að samtalið við vin hans um gula spjaldið í leik Leeds og West Brom hafi farið fram en um grín hafi verið að ræða. Ekkert bendir til þess að Coote hafi hagnast fjárhagslega á þessu atviki og hann neitar alfarið sök í málinu.

Coote kynntist manninum sem hann sendi skilaboðin til á netinu. Hann gortaði sig af því að hann væri að fara að dæma leik Leeds og West Brom í B-deildinni. Vinurinn sagði Coote að gefa Alioski gula spjaldið svo hann gæti veðjað á það fyrir leikinn. Coote sagðist ekkert vita hvað hann væri að tala um en gaf Alioski gula spjaldið á 18. mínútu leiksins.

Daginn eftir leikinn sendi Coote eftirfarandi skilaboð á vininn: „Ég vona að þú hafir veðjað á það sem við töluðum um.“ Vinurinn sagðist ekki hafa gert það en sagði að félagi sinn hefði líklega gert það. Coote svaraði: „Haha, hann þarf að deila því með þér.“

Sem fyrr sagði hagnaðist Coote ekki á atvikinu og PGMOL hafnar því að hann hafi spjaldað leikmanninn viljandi. Skilaboðin líta hins vegar ekki vel út fyrir hann, sérstaklega ekki eftir atburði síðustu vikna.


Tengdar fréttir

Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi

Enska úrvalsdeildin í fótbolta fer aftur af stað um næstu helgi en þar verður hvergi sjáanlegur einn þeirra dómara sem knattspyrnuáhugafólk sér vanalega á leikjum deildarinnar.

Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi

Vandræði enska dómarans Davids Coote virðast engan endi ætla að taka. Nú er komið í ljós að hann reyndi að skipuleggja eiturlyfjapartí meðan hann var fjórði dómari á leik Tottenham og Manchester City í enska deildabikarnum í síðasta mánuði.

Coote dómari í enn verri málum

Ensku dómarasamtökin taka nýjustu fréttir af dómaranum David Coote mjög alvarlega en dómarinn umdeildi virðist vera kominn í enn verri mál.

Murphy um Coote: „Hann er búinn“

Fyrrum knattspyrnumaðurinn og núverandi knattspyrnusérfræðingurinn Danny Murphy telur að dómarinn David Coote munu aldrei aftur dæma í ensku úrvalsdeildinni.

Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote

Eftir að myndband af dómaranum David Coote þar sem hann kallar Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins tussu, fór í dreifingu hafa stuðningsmenn Rauða hersins rifjað upp gömul atvik tengd dómaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×