Innlent

Læknar á loka­sprettinu í kjara­viðræðum

Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands.
Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/Arnar

Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags íslands er jákvæð fyrir framhaldi kjaraviðræðna lækna í dag. Hún segir að hennar tilfinning sé að þau séu að komast á lokasprettinn.

„Ef að við rekumst ekki á einhverjar óvæntar hindranir eða óyfirstíganlegar á honum þá myndi ég telja að við værum að fara að klára þetta vonandi fyrir kvöldmat, það er stefnan,“ segir Steinunn en rætt var við hana í Karphúsinu í hádeginu í dag.

Hún segir að áhersla þeirra í kjaraviðræðum sé betri vinnutími og stytting vinnuvikunnar. Að stuðla að betra jafnvægi einkalífs og vinnu.

„Að þurfa ekki að vinna myrkranna á milli, eins og sumir læknar hafa gert, til þess að hafa sæmilega í sig og á.“

Verði hægt að lokka lækna heim

Steinunn segir álag hafa verið úr öllu hófi og að þeir samningar sem þau vinni að núna geti verið stórt skref í vinnuverndarátt gagnvart þessum hópi.

Steinunn segir eitt af yfirmarkmiðum viðræðnanna að fá lækna heim sem starfa erlendis. Vinnuumhverfið hafi verið óaðlaðandi en þau sjái fyrir sér að ef þau nái að landa kjarasamning, eins og hann sé að birtast þeim núna, þá sé það söluvara til útflutnings og það verði hægt að „lokka fólk heim“.

„Ég veit það eru komin fram áform um að fylgja honum eftir ef allt fer á besta veg,“ segir Steinunn og vonar að það verði hægt að baka vöfflur í Karphúsinu í kvöld.


Tengdar fréttir

Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið

Samninganefndir lækna og ríkisins hafa fundað í allt kvöld. Fundi er að ljúka og vonast formaður Læknafélagsins til þess að samningar náist í fyrramálið. 

Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld

Fundum samninganefnda kennara annars vegar og ríkis- og sveitarfélaga hins vegar í Karphúsinu var frestað um klukkan fjögur í dag. Ríkissáttasemjari segir nefndirnar eiga vinnufundi í fyrramálið en hittist svo hjá honum klukkan eitt á morgun.

Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun

Samninganefndir lækna og ríkis komu saman í Karphúsinu klukkan níu til að leggja lokahönd á kjarasamninga. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir líklegt að fundað verði í allan dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×