Körfubolti

LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn

Siggeir Ævarsson skrifar
LaMelo Ball skýtur yfir hinn hávaxna Brook Lopez í leiknum í nótt
LaMelo Ball skýtur yfir hinn hávaxna Brook Lopez í leiknum í nótt Vísir/Getty

LaMelo Ball, leikmaður Charlotte Hornets, komst í nótt í hinn eftirsótta 50-stiga klúbb og varð um leið þriðji yngsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar til að skora 50 stig eða meira í leik, en Ball er fæddur 2001 og er því 23 ára.

Ball er jafnframt fyrsti leikmaður Hornets til að ná þessum áfanga en afrekið fellur þó sannarlega í skuggann af þeirri staðreynd að Hornets tapaði leiknum gegn Milwaukee Bucks 125-119.

Þetta var í fimmta sinn á tímabilinu sem leikmaður skorar 50 stig eða meira á tímabilinu, en þess má til gamans geta að Lonzo Ball, eldri bróðir LaMelo, hefur mest skorað 33 stig í einum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×