Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. nóvember 2024 13:00 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið í morgun og þakka Rannveigu Sigurðdardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu, fyrir samstarfið. Vísir/Vilhelm Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sat sinn síðasta kynningarfund peningastefnunefndar í morgun en hún lætur af störfum þegar skipunartími hennar rennur út um áramótin. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið við lok fundarins til að þakka Rannveigu fyrir sitt framlag en enginn hefur lengri reynslu en Rannveig af vettvangi peningastefnunefndar. „
Af 125 fundum nefndarinnar frá upphafi þá hef ég setið alla nema einn og tekið ákvarðanir á fjórðungi þeirra. Þannig þetta verður mjög áhugavert að horfa á þetta í febrúar og vita hvort ég geti rétt til um hvað nefndin vilji gera,“ sagði Rannveig létt í bragði við tilefnið. Þá þakkaði hún kollegum sínum fyrir samstarfið og nýtti einnig tækifærið til að þakka fulltrúum greiningardeilda fjármálastofnanna sem viðstaddir voru á kynningarfundinum. Rannveig var ráðin til starfa í Seðlabankanum árið 2002 og var um áratug staðgengill aðalhagfræðings bankans áður en hún var skipuð í embætti aðstoðarseðlabankastjóra 1. júlí 2018. Hún varð síðan varaseðlabankastjóri peningastefnu við sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins 1. janúar 2020. Hefði mátt vera minni verðbólga og minna um áföll „Þetta hefur verið mjög ánægjulegur tími, það hefði mátt vera…“ sagði Rannveig þegar Ásgeir Jónsson greip létt fram í og botnaði setninguna: „…minni verðbólga?“ sagði Ásgeir og uppskar við það hlátur í salnum. „Alltaf minni verðbólga en líka minni áföll,“ hélt Rannveig áfram og rifjaði sérstaklega upp að þegar peningastefnunefndin tók til starfa hafi Ísland verið statt í miðju „fjármálaáfalli“. Þá hafi aðstæður einnig verið krefjandi þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir. „Þar sem við meðal annars fáum lækna á fund til þess að fara yfir málin með okkur sem er ekki mjög venjulegt,“ sagði Rannveig sem nefndi jafnframt að gríðarlegur vöxtur hafi verið í ferðaþjónustunni á tímabilinu. „Þetta er aldrei beina brautin eða lognmolla, það er náttúrlega það sem er svo skemmtilegt við þetta starf er það að það er sjaldan kleinuástand í íslensku hagkerfi,“ sagði Rannveig. Hún var hógvær þegar hún nefndi einnig að sennilega taki hún með sér töluvert stofnanaminni úr Seðlabankanum enda enginn sem hefur setið jafn marga fundi peningastefnunefndar frá upphafi. „Ég vil bara þakka þér kærlega fyrir,“ sagði Ásgeir Jónsson að lokum.
Seðlabankinn Efnahagsmál Vistaskipti Mest lesið Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Stýrivextir halda áfram að lækka Viðskipti innlent Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Viðskipti innlent Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Viðskipti innlent Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Viðskipti innlent Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Uppsagnir hjá Controlant Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Sjá meira