Afmælisfögnuður í nýju húsnæði
Verslunin blés til veislu á dögunum í tilefni flutninganna og 20 ára starfsafmælis. Fjölmargir gestir litu við í Stekkjarbakka og fögnuðu tímamótunum, nutu veitinga og skoðuðu nýja sýningarsalinn.
Hér má fletta í gegnum myndir frá afmælisviðburðinum.
Samstarf við skemmtilega aðila
Signature er „concept store“ þar sem allir þættir spila saman. Ilmur, tónlist, orka og tilfinning skipta miklu máli og nýi sýningarsalurinn snýst um svo miklu meira en bara húsgögn. Hvert rými hefur sitt einstaka litaþema, þróað í samstarfi við litasérfræðinga Slippfélagsins.
Litir og veggfóður eru merkt með kóða frá Slippfélaginu, sem auðveldar viðskiptavinum að fá innblástur fyrir litapörun með húsgögnum.
Litlu atriðin sem skapa heildstæða tilfinningu
Þá er Signature í samstarfi við vefverslunina Vínkonur.is, sem gerir viðskiptavinum kleift að sækja vínpantanir beint í sýningarsalinn.
Oft eru það litlu atriðin sem við tökum ekki einu sinni eftir, en saman skapa þau heildstæða tilfinningu eða upplifun sem gerir Signature að einstökum áfangastað fyrir hönnun og innblástur.
Næg bílastæði á nýja staðnum
Aðgengi var stór þáttur í ákvörðuninni um að flytja verslunina og eftir að hafa skoðað ýmsar staðsetningar varð Stekkjarbakki fyrir valinu. Verslunin er nú í alfaraleið, á einni hæð og næg bílastæði.
Þá segir Böðvar Friðriksson, eigandi Signature, útisvæði í undirbúningi á nýja staðnum þar sem garðhúsgögn verða sýnd með vorinu en Signature hóf starfsemi á sínum tíma sem sérverslun með útihúsgögn. Í dag er í boði mikið úrval af hönnunarhúsgögnum og fylgihlutum fyrir heimili og bæði fyrirtæki og veitingastaði.
„Í nýju húsnæði getum við lagt ennþá meiri áherslu á upplifun og persónulega þjónustu,“ segir Böðvar.
Vinsælar vörur og trend
Hönnunarstraumar dagsins í dag einkennast af bogadregnum formum, ávölum línum og Bouclé áklæði. Fólk blandar saman áferðum og sjá má áhrif frá náttúrunni í nýjum vörum eins og tálgaðri og hrárri gegnheilli eik og perluhvítum steini.
Lund borðstofuborð, Bellagio sófi og Kalmar hliðarborð koma einstaklega vel út í nýju íbúðinni hjá áhrifavaldinum Hildi Sif sem hún og Páll Orri keyptu á dögunum.
Um tíma þurfti allt að passa saman en nú er það andrúmsloftið og stíllinn sem skipta meira máli en að hlutirnir séu nákvæmlega eins. Að hanna heimilið er skapandi ferli. Það snýst ekki um að fylgja ákveðnum reglum heldur finna það sem skapar vellíðan á heimilinu.
Signature" eða "centerpiece" húsgögn gefa heimilinu sérstöðu. Það getur verið drauma stóllinn, við hliðina á uppgerðu kaffiborði sem fannst á markaði. Hvert húsgagn segir sína sögu.
Hönnun á góðu verði allt árið um kring
Hróbjartur Böðvarsson, rekstrarstjóri segir áhersluna á hönnunarvöru í háum gæðaflokki og samkeppnishæft verð. Signature fylgi þeirri stefnu að bjóða vöruna á sanngjörnu verði allt árið um kring í stað mikilla reglubundinna afslátta.
„Við trúum því að heiðarleiki gagnvart viðskiptavinum okkar sé það sem skapar traust og langlífi í rekstrinum,“ segir hann.
„Við verðum með lokað frá 22. desember til 5. janúar því fjölskyldufyrirtækið okkar fer erlendis til að fagna frábæru ári! Útsalan hefst svo fljótlega í janúar þar sem að fólki gefst kostur á að panta húsgögn og smávöru með góðum afslætti og stuttum afgreiðslutíma."
„Fjölmörg áklæði og litir í boði fyrir sérpantaða sófa og stóla."
Einnig höfum við birt á Instagram þegar við skiptum út sýningareintökum og getur fólk þá gert frábær kaup með allt frá 20%-30% afslætti. Það fylgjast margir vel með því þau eintök fara fljótt.“