Átta marka jafntefli í toppslag ítalska boltans Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2024 18:59 Kenan Yildiz kom inn af bekknum og skoraði tvö fyrir Juventus. Jonathan Moscrop/Getty Images Inter og Juventus gerðu 4-4 jafntefli er liðin mættust í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Piotr Zielinski kom heimamönnum í Inter yfir með marki af vítapunktinum á 15. mínútu áður en Dusan Vlahovic jafnaði metin fyrir gestina fimm mínútum síðar. Timothy Weah skoraði svo annað mark Joventus á 27. mínútu, en Henrikh Mkhitarian jafnaði metin á ný fyrir Inter á 35. mínútu. Tveimur mínútum síðar skoraði Piotr Zielinski annað mark sitt og þriðja mark Inter, aftur af vítapunktinum, og sá til þess að heimamenn fóru með 3-2 forystu inn í hálfleikshléið. Síðari hálfleikur var svo ekki minna fjörugur en sá fyrri. Denzel Dumfries kom heimamönnum í 4-2 snemma í síðari hálfleik, en á 61. mínútu kom Kenan Yildiz inn af varamannabekk Juventus og sá átti heldur betur eftir að setja svip sinn á leikinn. Yildiz minnkaði muninn fyrir gestina á 71. mínútu áður en hann jafnaði metin og tryggði Juventus eitt stig rúmum tíu mínútum síðar. Niðurstaðan því 4-4 jafntefli í mögnuðum leik. Inter er nú með 18 stig í öðru sæti deildarinnar eftir níu umferðir, fjórum stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á undan Juventus sem situr í þriðja sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Fleiri fréttir Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Sjá meira