Lífið

„Þegar þú ert að keppa til af­reka er það aldrei hollt“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Garpur I. Elísabetarson ræddi við Hildi Kristínu Sverrisdóttur um hættur Bakgarðshlaupa.
Garpur I. Elísabetarson ræddi við Hildi Kristínu Sverrisdóttur um hættur Bakgarðshlaupa. Vísir

Hildur Kristín Sverrisdóttir sjúkraþjálfari hefur áhyggjur af hættum sem fylgja þegar tekið er þátt í Bakgarðshlaupi. Hún segir það erfitt að vera fagmaður og horfa upp á hlauparana keyra sig út.

Hildur fylgdist með Bakgarðshlaupinu í Elliðaárdal sem hófst á laugardaginn. Garpur I. Elísabetarson tók hana tali um hættur þess að taka þátt í slíku langhlaupi.

Hildur segir spurningar hafi vaknað um neikvæðu áhrifin sem þátttaka í keppninni getur haft. „Sérstaklega þegar maður sér að þau eru að kreista allt úr sér.“

Hún segir það erfitt að vera fagmaður og horfa upp á hlauparana. Hins vegar bendir hún á að hlaupararnir völdu að vera atvinnumenn. „Þegar þú ert að keppa til afreka er það aldrei hollt,“ sagði Hildur.

Undirbúningurinn mikilvægur

„Þegar maður er farin að ganga þetta hart að sér og það eru einhverjir veikleikar í grunninn munu þeir koma,“ segir Hildur. Undirbúningur fyrir keppnina er því gríðarlega mikilvægur og þarf að vera í samráði við lækna og sjúkraþjálfara.

Garpur og Hildur tóku Mari Järsk sem dæmi en hún tók þátt í keppninni með rifinn liðþófa. Hildur segir Mari hafa tekið upplýsta ákvörðun um að taka þátt og hljóp hún samtals fimmtíu hringi eða 335 kílómetra. „Þetta er lífsstíll sem þú velur þér,“ segir Hildur.

Einn hlauparanna, Rakel María Hjaltadóttir, endaði á spítala eftir að hafa klárað 21 hring í keppninni. Hún datt ítrekað vegna hálku og meiddist á hné.

Ekki sjálfgefinn árangur

„Ég hef haft áhyggjur af því að þegar við erum komin með fleiri og fleiri sem eru að klukka í þessa kílómetra,“ segir Hildur. Hún bendir á að fólk megi ekki halda að langhlaupin séu eitthvað sjálfgefið.

Garpur bendir sömuleiðis á að skalinn verði skakkur og fólk „horfi á 100 kílómetra eins og það séu fimm.“

Íslenska landsliðið lauk keppni í nótt þegar Þorleifur Þorleifsson stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa klárað 62 hringi sem eru rúmir 415 kílómetrar. Heimsmeistaramótið er enn í gangi og eru 41 sem enn hlaupa þegar þessi frétt er skrifuð.

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild.


Tengdar fréttir

„Elísa fær að vera stjarna í dag og tekur þetta

Ofurhlauparinn Mari Järsk hætti keppni í 51. hring á HM í bakgarðshlaupi í dag. Hún fór vel yfir 300 kílómetra á tveimur sólarhringum og það sem meira er þá gerði hún það með rifin liðþófa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×