Íslenski boltinn

„And­lega lúinn“ Jón Daði færist nær Bestu deildinni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Bolton Wanderers á Englandi
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Bolton Wanderers á Englandi Vísir/Getty

Jón Daði Böðvarsson var ekki spenntur fyrir því að spila í Bestu deildinni þegar samningur hans við Bolton Wanderers rann út í sumar en útilokar þó ekki að gera það næsta sumar. Hann er með hugann við að finna lið í janúar.

Jón Daði hefur verið án liðs síðan samningur hans við Bolton á Englandi rann út í lok júní. Samningamál hans eru í lausu lofti eins og sakir standa.

„Staðan er sú að ég er samningslaus og hef verið að halda mér í standi. Þetta er smá spurningamerki eins og er. Ég veit ekki alveg hvað er fram undan,“ segir Jón Daði í samtali við Jóhann Skúla Jónsson í hlaðvarpinu Draumaliðið.

Hann leitist eftir því að finna sér nýtt lið þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar.

„Ég fókusa bara á janúar, það er það eina sem er í boði. Ég get í rauninni samið hvar sem er vegna þess að ég er án liðs. Það er miklu erfiðara þegar glugginn er lokaður af því að flestöll lið eru ekki að leita sér að styrkingu,“ segir Jón Daði.

Með slökkt á símanum

Jón Daði var orðaður við lið hér á landi í sumar og æfði meðal annars með KR. Hann segist ekki hafa verið spenntur fyrir hugmyndinni að spila heima þá en fjölskyldunnar vegna sé styttra en lengra í að hann flytji alfarið heim.

„Ég loka aldrei neinum dyrum. Til að byrja með var ég ekki mjög hrifinn af því vegna þess að maður vill halda sér úti sem lengst. Ísland kallar alltaf til manns, líka bara út af fjölskyldunni og aðallega börnunum mínum,“

„Stelpan mín fer bráðum að verða sex ára og ég vil fyrr en síðar að hún byrji fyrr en síðar á Íslandi í skóla. Ég loka ekki neinum dyrum,“ segir Jón Daði. Hann hafi þá haft gott af því að taka sér smá pásu í sumar.

„Maður er líka hálfpartinn búinn að vera með slökkt á símanum, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Ég hef verið svolítið leiðinlegur að svara ekki. Ég held það sé í lagi að viðurkenna það að maður var orðinn svolítið andlega lúinn,“ segir Jón Daði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×