Lífið

Gaf eigin­manninum nektar­mynd á stórafmælinu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
25 ár skilja hjónin að í aldri.
25 ár skilja hjónin að í aldri. Getty

Leikkonan Catherine Zeta-Jones fagnaði 55 ára afmæli sínu miðvikudaginn síðastliðinn. Í tilefni dagins birti hún mynd af sér kviknakinni á Instagram-síðu sinni. Við færsluna sagði hún myndina einnig vera einskonar afmælisgjöf til eiginmanns síns, Michael Douglas leikstjóra, sem varð áttræður sama dag.

„Eftir að hafa deilt afmælisdeginum með eiginmanni mínum síðastliðin 25 ár er ég að verða uppiskroppa með gjafahugmyndir. Þetta er hugmynd númer tvö, golfkúlur voru mín fyrsta hugmynd, að sjálfsögðu,“ skrifað hún við myndina. Óhætt er að segja að hún sé stórglæsileg í toppformi.

Hjónin fæddust bæði þann 25. september, Catherine árið 1969 og Michael árið 1944. Þau kynntust árið 1998 og giftu sig árið 2000. Saman eiga þau tvö börn, Dyl­an Michael og Carys Zetu. 

Afmælissöngur af dýrari gerðinni

Þetta var ekki eina færslan sem Catherine birti á Instagram í tilefni dagsins. Hún birti myndband af sér ásamt tónlistarmanninum Bono sem söng afmælissönginn fyrir Michael.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×