Hryðjuverkaríkið Ingólfur Steinsson skrifar 13. september 2024 14:17 Síonistar hafa nú gereytt megninu af Gaza, drepið tugi þúsunda og sært yfir hundrað þúsund, þar af er meiri hlutinn konur og börn. Aðferð þeirra til að sigrast á Hamas var sem sagt að sprengja svæðið í tætlur, gera það óbyggilegt og reka fólkið fram og aftur á meðan þeir láta vestrænum sprengjum rigna yfir það og drepa hvern sem fyrir verður. Í bráðum heilt ár hafa þeir stundað þetta meðan stjórnvöld Vesturlanda hafa, með nokkrum undantekningum, litið undan eða þagað þunnu hljóði og haldið áfram að senda vopn í síonísku drápsvélina sem beinist augljóslega gegn palestínsku þjóðinni. Þetta er svo furðuleg hegðun að maður botnar bara ekkert í þessu. Hvernig er hægt að tala um mannréttindi, mál- og tjáningarfrelsi, Genfarsáttmála og sannarleg mannréttindabrot Rússa í Úkraínu, vitandi að allt er þverbrotið í Palestínu, öll mannréttindi? Þar eru nú stundaðar þjóðernishreinsanir, hóprefsingar, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð allt af sömu stríðsmaskínunni sem haldið er uppi af Vesturlöndum og segist vera siðvæddasti her í heimi! Hvílík öfugmæli, hvílík firra! Er von í Harris? Kamala Harris sagði á dögunum að hún myndi halda áfram að senda vopn til Ísraels. Hvort þetta er pólitískt bragð til að hafa síonistana góða verður að koma í ljós. Það væri líklega ekki sérlega klók pólitík að segjast munu hætta þessum stuðningi þar sem gyðingar ráða svo miklu um það hver verður næsti forseti. Hún hefur sýnt að hún vill breytta stefnu gagnvart Ísrael. Hún sagði það hreint út í kappræðunum við Trump að hún vildi sjá aðra stöðu í Landinu helga þar sem stofnað væri sjálfstætt ríki Palestínumanna og öryggi þess og Ísraels væri tryggt. Þarna verður enginn friður fyrr en Palestínumenn hafa fengið sitt sjálfstæða ríki og losnað úr klóm Ísraels. Það vita allir sem vilja. Barbarossa nútímans Þessi allsherjarútrýming minnir óþægilega á Operation Barbarossa, innrásina í Sovétríkin 1941. Hitler sagði hermönnum sínum margendurtekið að þeir væru að fara gegn óæðri kynþáttum, slövum, sígaunum, gyðingum, fólki sem ætti engan tilverurétt. Það er þessi orðræða gömlu kvalaranna sem hefur gegnsýrt fasistastjórn Bíbí Netanjahú. Þeir segja að þetta fólk hafi engan rétt til lífs, þetta séu dýr sem þurfi að slátra. Sama gildir nú um Vesturbakkann sem Gazasvæðið. Síonistar eru svo kokhraustir undir verndarvæng USA að þeir segja þetta jafnvel opinberlega. Og myndskeið sem hermenn hafa sjálfir tekið sýna síonistahermenn vanvirða og fótum troða eigur og íbúðir Palestínumanna. Eyðilegging innviða Síonistar hafa eyðilagt flestalla skóla á Gaza, einnig heilbrigðiskerfið, bókasöfn, skólpkerfi, póstkerfi, öll þau kerfi önnur sem mynda innviði eins samfélags. Þeir hafa stundað stöðugar innrásir á Vesturbakkanum, yfirleitt á kvöldin og nóttunni. Þar fara þeir um rænandi, ruplandi og rífandi upp götur með jarðýtum, handtaka og drepa fólk. Þeir segjast vera að leita að Hamas. Sama segja þeir á Gaza. Svo sprengja þeir upp heilu hverfin og drepa tugi. Aldrei færa þeir fram nokkrar sannanir á því að Hamas hafi raunverulega verið þarna. Nei, nei, þeir eyða heilu flóttamannabúðunum á Gaza og drepa ótölulegan fjölda barna og kvenna og segja svo að þetta beinist að Hamas. Og svo eru þeir búnir að ræna landi út um allan Vesturbakkann. Stela stórum hlutum af því litla landsvæði sem Palestínumenn áttu eftir. Hundruðum saman hafa landránsbyggðirnar dreifst um allan Vesturbakkann í skjóli hersins siðvædda. Og landránsmenn ráðast á Palestínumenn reglulega með vopnum sem ráðherrar hafa gefið þeim. Já, þeir gáfu landránsmönnum vopn í haust sem leið til að þeir gætu „varið sig“. Allir sem vilja, vita að þeir hafa ekki þurft að verjast Palestínumönnum heldur er það þveröfugt. Hryðjuverkaríkið Ísrael Það verður að segjast að Ísrael er orðið að hryðjuverkaríki! Með dyggum stuðningi Vesturlanda, aðallega Bandaríkjanna. Þessir aðilar þreytast ekki á því að kalla alla aðra hryðjuverkamenn; þar fara fremstir í flokki Hamas og svo koma Hesbollah, Hútar og efst trónir svo Íran. En þeir ættu að líta í eigin barm: Þau vestrænu ríki sem fjármagna og vopnvæða þjóðarmorðið í Palestínu, þau fjármagna þjóðarmorð hryðjuverkaríkisins. Því ef einhverjir standa virkilega undir nafni sem hryðjuverkamenn þá eru það síonistar sjálfir. Nú skal það tekið fram að ekki allir gyðingar eru síonistar. Síonismi varð til sem hreyfing í lok 19. aldar í Evrópu. Hennar meginmarkmið var að stofna og byggja upp svokallað þjóðarheimili gyðinga. Margir gyðingar hafa verið á móti þessari ákvörðun. Síonistar í Ísrael hafa forðast að semja um nokkurn frið við þá íbúa landsins sem voru þar fyrir. Ef friður hefur verið í augsýn hafa menn eins og Begin, Sharon og Netanjahú komið í veg fyrir hann. Skýrasta dæmið er líklega Oslóarsamkomulagið sem Clinton átti þátt í að skapa 1993. Með því skyldu Ísraelsmenn viðurkenna PLO og PLO viðurkenna tilverurétt Ísraels. Síðan áttu Palestínumenn fá að stofna sjálfstætt ríki á fimm árum. Að leiða saman menn eins og Arafat og Rabín þáv. forsætisráðherra Ísraels og láta þá takast í hendur þótti þrekvirki á sínum tíma. Síonistar gerðu það samkomulag að engu með því að drepa Rabín! Þeir drápu eigin forsætisráðherra! Nacba II í boði Vesturlanda Stórum hluta almennings jarðkringlunnar er gersamlega misboðin framkoma Ísraels og þögn vestrænna ríkja og vopnavæðing þjóðarmorðsins. Það sést til dæmis vel á samfélagsmiðlum. Auðvitað var innrás Hamas í Ísrael hryllileg þó að atburðirnir hafi verið ýktir mjög. En eins og Guterres hjá SÞ benti á strax í haust sem leið, þá var þessi innrás ekki upphafið að neinu. Á undan henni var 17 ára einangrun Gaza-svæðisins, tæplega 60 ára hernám Ísraels á Palestínu og rúm 75 ár liðin frá stofnun Ísraels þegar heilli þjóð var ýtt til hliðar til að rýma fyrir þjóðarheimili gyðinga og meira en 750 þúsund manns urðu að flýja heimili sín! Þetta fólk settist að í nágrannalöndunum og á Gaza. Það hefur EKKI fengið að snúa heim. Þetta er það sem Palestínumenn kalla Nacba eða hörmungarnar. Það þjóðarmorð og útrýming sem nú stendur yfir kalla þeir Nacba II eða hörmungarnar síðari. Þær standa nú yfir í boði stjórnvalda USA og margra annarra Vesturlanda. Höfundur er tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ingólfur Steinsson Mest lesið Minnihlutinn sem skilur ekki að hann er í minnihluta Þórður Snær Júlíusson Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz Skoðun Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir Skoðun Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia Skoðun Hunsa eigin þekkingu og stefna á stórslys Björn Ólafsson Skoðun Frítt Elliði Vignisson Skoðun Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson Skoðun Skoðun Skoðun Friðarráð Eleanor Roosevelt lýsir okkur enn Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Frítt Elliði Vignisson skrifar Skoðun Vaxandi álag á fagfólk innan velferðarþjónustu Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Kemst ég örugglega út? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Sagði seðlabankastjóri Alþingi ósatt? Örn Karlsson skrifar Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson skrifar Skoðun Bakkakot er ekki frávik. Þetta er kerfi sem brást Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia skrifar Skoðun Góðan daginn, hvernig hefur þú það? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Money Heaven og týndu börnin okkar Davíð Bergmann skrifar Skoðun Svifryk borgarinnar er ekki slys – það er afleiðing stefnu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Ég býð þingmönnum og verkalýðsforkálfum í námsferð Róbert Björnsson skrifar Skoðun Veljum vistvænar samgöngur Finnur Ricart Andrason skrifar Skoðun Sterk rödd Íslands skiptir máli Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Minnihlutinn sem skilur ekki að hann er í minnihluta Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hunsa eigin þekkingu og stefna á stórslys Björn Ólafsson skrifar Skoðun Lausn við svifryki Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Ekki úr lausu lofti gripinn, Daði Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin… Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz skrifar Skoðun Ég brenn (út) fyrir menntakerfinu Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Að „fara í ræturnar“, val Samfylkingarinnar í Reykjavík við skipan á framboðslista Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki krefst nafns – nafnleynd krefst einskis Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun Jafnara aðgengi að Frístundastyrk í Reykjavík Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Er verið að bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis? Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vilt þú vita hvað hönnun í raun þýðir og hvað hún gerir? Sigríður Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Að „fara í ræturnar“, val Samfylkingarinnar í Reykjavík við skipan á framboðslista Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar
Skoðun Er verið að bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis? Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir skrifar